Citroën Berlingo Multispace er fjölnotabíll sem býður þér einstaka möguleika. Í Berlingo Multispace færðu nefnilega tvo fyrir einn! Þú notar hann til verka sem tengjast vinnunni, hvort sem er til flutninga á vörum, verkfærum eða mannskap - og að loknum vinnudegi tekur Berlingo Multispace við sem hreint frábær fjölskyldubíll. Þú ferð í bíltúr eða ferðalag með fjölskylduna, tekur stefnuna á skíðasvæðin á veturna og útilegur á sumrin. Þú finnur að Berlingo býr yfir þeim eiginleikum sem þú finnur ekki í öðrum fólksbílum!
Berlingo Multispace fyrir ólíkar þarfir
Veldu Berlingo Multispace sem sameinar ólíkar þarfir; kosti atvinnubílsins og fjölskyldubílsins. Það skiptir Berlingo Multispace ekki máli hvoru hlutverkinu hann sinnir – hann leysir þau bæði með sóma á hagstæðan hátt.
Hafir þú ekki þörf fyrir Berlingo sem fjölskyldubíl þá er Citroën Berlingo Van mjög góður kostur. Hann ber 200 kg. meira en Berlingo Multispace, eða 800 kg. Berlingo Van er með opnanlega lúgu í þaki að aftan og vinnuborð í niðurfellanlegu framsætinu. Skoðaðu hann (undir Sendibílar).