Smelltu á flokk

Citroën C5 • Um C5 

29. júlí 2010

Ný blanda fallegrar hönnunar, tækninýjunga og þæginda.

Nýr Citroën C5 uppfyllir sannarlega væntingar þínar um mýkt og þægindi í akstri. Þriðja kynslóð hins einstaka vökvafjöðrunarkerfis Citroën eykur ánægjuna af akstrinum enn frekar. Mikið hefur verið lagt í hljóðeinangrun bílsins sem hefur það eitt að markmiði að þér líði vel. Citroën C5 einkennist af ávölum línum og sterkum persónuleika sem stendur alls staðar uppúr fjöldanum. Citroën C5 er draumabíll við margbreytilegar aðstæður fjölskyldunnar. Hvort sem þú ert á leið í vinnu, að sækja börnin eða á leið í ferðalag, þá viltu að umhverfið sé með þeim hætti að sérhver för verði sem ánægjulegust, þægilegust og fullkomlega afslöppuð. Þessi upplifun er daglegt brauð þeirra sem kynnst hafa hinum nýja Citroën C5.

Innra rýmið er hlaðið þægindum sem kemur til móts við væntingar þínar um sérstæða upplifun í akstri í Citroën. Hér spila ekki aðeins sætin stórt hlutverk, sem eru sannkölluð hægindi, heldur er skipulagið einnig með þeim hætti að öll stjórntæki eru innan seilingar. Mælaborðið er stílhreint og greinilegt. Fullkomin hljómflutningstæki og tæknivædd miðstöðin gera ferðalögin enn unaðslegri í Citroën C5. Hinar auknu þæginda- og öryggiskröfur sem endurspeglast í búnaði Citroën C5 eru ef til vill ástæða þess að EuroNCAP verðlaunaði hinn nýja Citroën C5 með 5 stjörnum fyrir afburðaöryggi, þar sem einkunnin var 36 af 37 mögulegum punktum. Þessi einkunn gerir C5 að einum öruggasta fólksbíl í heimi.

Lestu ítarefnið

Lesa ítarefni

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli