Smelltu á flokk

Citroën C1 • Öryggi 

06. febrúar 2012

Citroën C1 er lítill bíll, en þrátt fyrir smæðina er ekkert slegið af öryggiskröfum, bæði fyrir ökumann og farþega, enda fær Citroën C1 4 stjörnur í hinu virta EURO NCAP öryggisprófi.

Citroën C1 hefur öryggispúða fyrir ökumann og farþega frammí og þú getur aftengt loftpúðann farþegamegin með lykli. Þriggja punkta belti með beltastrekkjara er í öllum sætum og ISOFIX festingar fyrir barnabílstóla í aftursætum.

ABS hemlakerfi með EBD hemlajöfnun aðstoðar þig að stöðva Citroën C1 örugglega og CSC ( Cornering Stability Control ) stöðugleikakerfið grípur inní ef bíllinn fer að skrika til. CSC kerfið er frábær viðbót við öryggisbúnað C1 og kemur sér vel fyrir okkur hér á Íslandi sem búum við óblíð veðurskilyrði, frost og þýðu. Hálka og krap getur komið þér á óvart þar sem það leynist í beygju sem þú ferð um á leið til vinnu. Ef bíllinn skrikar til í beygjunni þá aðstoðar CSC kerfið þig að viðhalda stýringu í gegnum beygjuna. Veldu öruggan Citroën C1.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli