Smelltu á flokk

Citroën C4 Picasso • Um C4 Picasso 

06. febrúar 2012

Skoða PDF: C4 Picasso bæklingur

Byltingarkennd og hressandi hönnun fjölnotabílsins

Þú velur byltingarkennda og hressandi hönnun Citroën C4 Picasso; glæsilega fjölnotabílsins sem vekur óskoraða athygli hvar sem hann fer. Þú horfir á ávalar línurnar og yfirbygginguna sem veita farþegum Picasso óhindrað útsýni úr farþegarýminu. Þú sest inn og lítur yfir takmarkalaust rýmið. Þægindin og munaðurinn blasa hvarvetna við. Þú saknar einskis. Þetta er ástæðan fyrir því að Íslendingar velja nýjan Citroën fyrir sig og fjölskylduna.

Ökuferðin verður munaður

Citroën C4 Picasso er einstaklega rúmgóður bíll og aksturseiginleikar hans eru rómaðir og löngu landsþekktir. Ökuferðin felur í sér þægindi og ánægju. Hún er í raun munaður! Citroën C4 Picasso hefur fengið mikið lof fyrir ríkulegan búnað og mikið innanrými. Fjöldi geymsluhólfa, frábær aðbúnaður barna, þrjú jafnstór sæti að aftan sem hægt er að fella niður, velta eða fjarlægja hvert og eitt, há sætisstaða farþega og mikið farangursrými eru meðal þeirra ástæðna sem gera C4 Picasso að einstökum fjölskyldubíl. C4 Picasso er sterklega byggður og búinn öryggisbúnaði eins og hann gerist bestur.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli