Smelltu á flokk

06. febrúar 2012

„Besti stóri fjölnotabíllinn“

Citroën C8 er draumabíll þeirra serm þurfa gott rými og mikil þægindi enda hefur Citroën C8 þegar verið kosinn „Besti stóri fjölnotabíllinn“ í Bretlandi af tímaritinu What Car. Hann er búinn þremur sætaröðum fyrir sjö farþega en hann er líka fáanlegur fyrir 8 með sérpöntun. Citroën C8 hentar því ekki aðeins stórfjölskyldunni heldur einnig til farþegaflutninga, hvort sem er í atvinnuskyni eða til notkunar á vegum fyrirtækja.

Citroën C8 setur nýja staðla í stærri flokki fjölnotabifreiða varðansi hönnun, þægindi um borð, akstursupplifun og öryggi. EuroNCAP hefur þegar gefið Citroën C8 fullt hús stiga, 5 störnur í árekstrarprófi stofnunar-innar enda er búnaður bílsins með því besta sem þekkist.

Hönnun Citroën C8 er einstaklega vel heppnuð. Framendinn er ávalur og rennilegur með stórum framluktum og að aftan er bíllinn búinn hástæðum og mjög greinilegum afturluktum. Hlerinn að aftan opnast upp á gátt sem gerir hleðslu farangurs mjög þægilega.

Sannkallaður lúxus

Öll umgengni við Citroën C8 er eins og best verður á kosið. Rými fyrir alla farþega er einstaklega mikið og hægt er að snúa báðum framsætum í 180°.

Sætin í Citroën C8 eru sannkölluð hægindi enda hönnun sæta hjá Citroën eitt af aðalsmerkjum framleiðandans. Auðvelt er að fjarlægja báðar sætaraðir að aftan og breyta bílnum tímabundið til vöruflutninga. Þess vegna er C8 sannkallaður fjölnotabíll.

Bæði framsæti eru hæðarstillanleg og með upphitun. Gírstöngin er í sjálfu mæla-borðinu sem sparar mikið pláss og fellur beint í lófa ökumanns. Staðsetning hennar á meðal annars þátt sinn í því hve umgengni við C8 er svo þægileg sem raun ber vitni.

Mælaborðið er gerðarlegt og ákaflega fallegt. Það er í heild búið óhefðbundnum efnum, mælar eru fyrir miðju, stílhreinir og fallegir. Frágangur farþegarýmisins er afar vandaður.

Til að fá upplýsingar um verð og búnað þessa bíls þá vinsamlegast hafið samband við söluráðgjafa.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli