Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mán. 28. jan. 2008

Citroën C4 Grand Picasso Bíll ársins 2008

Citroën C4 Grand Picasso var valinn besti fjölnotabíllinn 2008 af What Car?
Citroën C4 Grand Picasso var valinn besti fjölnotabíllinn 2008 af What Car?
Citroën C4 Grand Picasso hefur enn og aftur sannað ágæti sitt því hann var á dögunum valinn Bíll ársins 2008 í hópi fjölnotabíla (MPV) af bílatímaritinu What Car?

Rými, hagkvæmni, öryggi

Grundvallarforsendur fyrir besta fjölnotabílnum að mati What Car? voru meðal annars mikið rými, hagkvæmni í rekstri og öryggi farþeganna. Fjölnotabíll þarf að mati tímaritsins að auðvelda fjölskyldufólki lífið þannig að ferðalagið verði leikur einn.

Sveigjanleiki í uppsetningu sæta

Mikill sveigjanleiki í uppsetningu sæta gera bílinn að sannkölluðum fjölnotabíl. Frumleg hönnun fellanlegra sæta auka möguleika í endurskipulagningu rýmisins og eru auðveldar. Sætin eru stillanleg hvert og eitt fyrir mjóhrygg og fótarými er meira en í öðrum bílum í sama flokki. Miðröðin er breiðari en í bílum keppinauta og bæði rúmt til lofts og fóta.

Góðir aksturseiginleikar

Á vegi er C4 Grand Picasso unaður einn að mati What Car? Öflug 1,6 lítra dísilvélin er bæði lipur og snörp og heldur vel afköstum sínum þótt fullhlaðinn sé.

Staðalbúnaður og öryggi

Meðal staðalbúnaðar má nefna rafmagn í öllum rúðum, aksturstölvu og fjarstýrðar samlæsingar. Citroën C4 Grand Picasso hefur að sjálfsögðu fullt hús stiga þegar að örygginu kemur því hann hlaut 5 stjörnur í öryggisprófi Euro NCAP.

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli