Kvennavefsíðan EveCars gefur Citroën C4 Picasso góða dóma
EveCars mælir eindregið með Citroën C4 Picasso.
Blaðakona á vegum kvennavefsíðunnar EveCars, sem fjallar um allt er varðar bíla, reynsluók nýlega fjölnota- og fjölskyldubílnum Citroën C4 Picasso og gaf honum góða dóma.
Góður fjölskyldubíll
EveCars er ein vinsælasta bílaheimasíða fyrir konur í Bretlandi og segir blaðakonan að C4 Picasso láti einstaklega vel að stjórn, stýrið sé þjált og rýmið nóg. Því sé afar þægilegt að skutla fjölskyldumeðlimunum frá einum stað til annars.
Unaðsleg hönnun
„Citroën C4 Picasso er enginn venjulegur bíll. Hönnun hans er ekki hefðbundin. Rofar eru vel staðsettir þegar ökumaðurinn hefur lært á bílinn og hrein unun er af hönnun innréttingarinnar og framrúðunnar sem er óvenjuleg og stór. Aftursætin er hægt að færa til sjálfstætt og leggja ofan í gólfið til að nýta allt farþegarýmið undir farangur,“ segir m.a. í umsögn EveCars.