Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fim. 14. feb. 2008

Citroën C4 Picasso Lounge

Hann er glæsilegur að innan lúxusbíllinn Citroen C4 Picasso Lounge.
Hann er glæsilegur að innan lúxusbíllinn Citroen C4 Picasso Lounge.
Framleiðendur Citroën hafa ákveðið að framleiða C4 Picasso í sérstakri lúxusútgáfu, sem einungis verður seldur á Bretlandseyjum og Þýskalandi. Heitir bílinn Citroën C4 Picasso Lounge og er að koma á markaði um þessar mundir.

Glæsilegur C4 Picasso

Ekkert er til sparað í innréttingu þessarar sérstöku lúxusútgáfu C4 Picasso. Innréttingin er dökk, í bílnum eru fjórir leðurstólar með armhvílum beggja megin. Í bílnum er Philips NXT hljóðkerfi með nýrri flatri hátalaratækni, sem ætti að njóta sín til fulls, þar sem bíllinn er sérstaklega hljóðeinangraður. Að utanverðu er krómið áberandi, rúður eru dökkar og skyggðar, sóllúga er í þaki og vindskeið við ofanverða afturrúðu. Í Citroën C4 Picasso Lounge er 138 hestafla tveggja lítra túrbódíselvél og öryggisbúnaður allur af vönduðustu gerð. Bíllinn kostar í Bretlandi rúmar þrjár milljónir króna.

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli