Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mið. 20. feb. 2008

Citroën C4 Picasso frumsýndur á laugardag

Nýr Citroën C4 Picasso verður frumsýndur hjá Brimborg laugardaginn 23. febrúar milli kl. 12 og 16 í bæði Reykjavík og á Akureyri. Þessi fimm manna fjölskyldubíll er gríðarlega vinsæll í Evrópu, m.a. vegna einstaklega praktískrar hönnunar sem tekur mið af þörfum allra farþega. Ytri hönnun Citroën C4 Picasso er sem fyrr sportleg, fersk og kröftug og hefur þann hæfileika að fá fólk til að snúa sér við á götu og horfa á eftir bílnum.

Há sætisstaða og gott útsýni

Ef nefna ætti fáein atriði sem skapað hafa C4 Picasso sínar fádæma miklu vinsældir mætti til dæmi tiltaka einstakt útsýni sem allir í bílnum njóta hvar sem setið er, ekki einungis vegna hárrar sætisstöðu heldur einnig vegna stórra glugga. Þá nær útsýnið einnig til skýjanna vegna glerþaksins, sem veitir góðri birtu inn í bílinn.

Vítt til veggja

Það er vítt til veggja í farþegarými Citroën C4 Picasso enda er bíllinn 4,47 m langur, 1,83 m breiður og 1,66 hár. Reyndar býður Citroën C4 Picasso mesta rýmið í sínum flokki. Enginn framleiðandi býður betur í þeim efnum. Þegar setið er í öllum sætum er stærð farangursrýmisins aftast 500 lítrar. Séu aftursætin hins vegar lögð ofan í gólfið stækkar það í 1.734 lítra.

Hraðastillir og ísingarviðvörun

Stýrishjólið er fjölstillanlegt og leðurklætt. Hraðastillirinn er á sínum stað og aksturstölvan. Einnig er bíllinn búinn viðvörun við ísingarhættu. Hljómflutningstæki með sex hátölurum eru ekki af verri endanum og með vali á aukabúnaði má fá DVD-skjái í bak beggja framsætanna.

Mikið geymslurými

Þá má ekki gleyma frábærum útfærslum sem snúa að praktísku geymslurými (hirslum) sem ekki síst ungbarnafjölskyldur hafa þörf fyrir. Til að mynda er kæling í hanskahólfinu, rúmgóðar geymslur undir gólfi aftur í og farmfestingar í farangursrými. Í baki framsætanna eru niðurfellanleg borð sem eru tilvalin fyrir börnin.

Sérmiðstöð aftursætisfarþega

Sérmiðstöð er fyrir aftursætisfarþega, sem geta þannig stillt eigið hitastig í sínu rými. Í farþegarýminu er einnig nemi sem greinir loftgæðin og veitir fersku lofti inní bílinn þegar þess er þörf. Tvær 12w rafmagnsinnstungur eru í bílnum, önnur frammí og hin í farangursrými, sem getur verið afar heppilegt þegar halda þarf matnum í kæliboxinu köldum á leið í ferðalagið. Svona mætti lengi telja.

Einstök þægindi

Í umfjöllunum erlendis um nýjan C4 Picasso er sérstaklega tekið til vandaðs efnisvals í farþegarýminu sem blasa við á sætum, í mælaborði, stokkum, hurðaspjöldum og gólfi. Einnig þykja akstursþægindi með þeim bestu sem völ er á í þessum stærðarflokki. Það er að vísu löngu þekkt staðreynd að fáir eða engir fara í föt framleiðenda Citroën þegar kemur að þægindum ökumanns og farþega.

Fullkomið öryggi

Citroën C4 Picasso er byggður á sama undirvagni og C4 Grand Picasso, sem hlaut 5 stjörnur í öryggisprófi Euro NCAP, og mætir bíllinn því öllum ströngustu öryggiskröfum. Í Citroën C4 Picasso eru sjö öryggispúðar, Isofix festingar við öll farþegasæti, bílbeltaviðvörun er tengd öllum sætum og lætur ökumann vita gleymi einhver að spenna beltin og svona mætti lengi telja. Sjálfvirk handbremsa sem tekur við um leið og drepið er á bílnum er meðal staðalbúnaðar auk brekkuhaldara (e. Hill Start Assist), en sá búnaður styður við bílinn í brekku til að koma í veg fyrir að hann renni áður en ekið er af stað. Þá má nefna stöðugleikastýrikerfi, spólvörn, EBD hemlajöfnun og EBA hjálparhemlun, nálægðarskynjara í afturstuðara og margt fleira.

Bíltúrinn er draumur einn

Komdu í Brimborg og skoðaðu nýjan Citroën C4 Picasso. Prófaðu nýja bílinn, hvort heldur sem er 143 hestafla bensínvélina eða hina spræku 110 hestafla túrbódísilvél. Báðir bílarnir eru sjálfskiptir og því verður bíltúrinn draumur einn.

Helstu kennitölur

  • Vélar: Bensín og dísil Hdi 
  • Gírkassi: Rafeindastýrð sjálfskipting 
  • Hæð: 1660 mm 
  • Lengd: 4470 mm 
  • Breidd: 1830 mm 
  • Hjólhaf: 2728 mm 
  • Beygjuradíus framan/aftan: 1505 - 1539 mm

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli