Færð þú borð fyrir tvo eftir reynsluakstur Citroën C4 Picasso Comfort?
Komdu og reynsluaktu Citroën C4 Picasso Comfort
Á morgun, laugardaginn 1. mars kl. 16, verður lokið sett á happapott Brimborgar. Í pottinum eiga þeir nafn sitt sem reynsluekið hafa hinum nýja og stórglæsilega Citroën C4 Picasso Comfort, sem frumsýndur var fyrir viku í Reykjavík og á Akureyri.
Komdu á morgun
Komdu á morgun í Brimborg á Akureyri eða í Reykjavík milli kl. 12 og 16 og prófaðu frábæran fjölskyldubíl frá landi munaðar og lystisemda. Í byrjun næstu viku verða nöfn heppinna þátttakenda veidd uppúr happapottinum og fá þeir gjafabréf fyrir tvo fyrir flotta máltíð á Argentínu steikhúsi í Reykjavík eða Friðriki V. á Akureyri.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa, komdu og reynsluaktu alvöru bíl!
Nýir Citroën bílar
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.