Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fös. 11. apr. 2008

Citroën Jumper sendibíllinn er frumsýndur í Brimborg um helgina

Citroën Jumper sendibíllinn er frumsýndur í Brimborg um helgina
Citroën Jumper sendibílinn er frumsýndur um helgina í Brimborg Reykjavík og Brimborg Akureyri. Komdu við í Brimborg um helgina frá 12 til 16 laugardag eða 13 til 16 sunnudag og berðu augum einn glæsilegasta sendibíll ársins – Citroën Jumper!

Tvær gerðir af Citroën Jumper

Það eru tvær gerðir af Jumper í boði þar sem annar er með átta rúmmetra hleðslurými og hinn tíu rúmmetra hleðslurými. Jumper L1H1 er rúmlega tveir metrar á breidd og tæpir fimm metrar að lengd og tekur allt 1.155 kg af vörum. Stærri bíllinn, L2H1, er jafn breiður og L1H1 en rúmir 5,4 metrar að lengd og ber allt að 1.115 kg.

Citroën Jumper er hagkvæmur í rekstri

Citroën Jumper er flokkaður í hóp stærri sendibíla og er einstaklega hagkvæmur í rekstri þar sem vélin eyðir aðeins um 6,8 lítrum á langkeyrslu og 8,2 innanbæjar.
Þessi skemmtilegi sendibíll er með afkastamikilli hundrað hestafla 2,2 lítra túrbódíselvél með 250 Nm togi.

Þægindi í fyrirrúmi hjá Citroën Jumper

Citroën Jumper er hannaður með öryggi og þægindi ökumanns í huga. Í farþegarýminu eru m.a. glasahaldarar, rúmgóð geymsluhólf og niðurfellanlegt borð. Sætin eru þægileg, upphitanleg og gírstöngin er staðsett nálægt ökumanni. Ökumannssætið er hæðarstillanlegt og með armpúða. Þá er Jumper búinn hljómtækjum með geislaspilara sem stjórna má frá fjölstillanlegu stýrishjólinu. Þá er einnig unnt að stilla hæð aðalljósanna með tilliti til hleðslu bílsins hverju sinni. Hliðarspeglarnir eru að sjálfsögðu rafdrifnir, með stefnuljósum og aðkomuljósum.

Sjálfvirka miðstöðin í Citroën Jumper

Jumper er búin sjálfvirkri miðstöð sem kallast Webasto. Miðstöðin viðheldur eðlilegum vinnsluhita á vél og kælivatni. Tækni miðstöðvarinnar gerir því bílnum kleift að hitna fljótt og viðhalda hitanum vel, jafnvel í miklum kulda.

Fjölhæfni Citroën Jumper

Jumper er með tvískiptar rennihurðir auk tvöfaldrar afturhurðar sem hægt er að opna allt að 180°. Hleðslurýmið er rúmgott, með gott aðgengi, góðri lýsingu og er með klæðningu á gólfi og hliðum til að verja bílinn gegn skemmdum.

Öryggi Citroën Jumper

Jumper er öruggur sendibíll enda búinn öryggispúðum í stýri og mælaborði. Hemlakerfi nýja bílsins hefur verið endurhannað til að auka skilvirkni, endingu og áræðanleika enda er í staðalbúnaði allra bílanna fjögurra diska bremsur. Við öll sæti eru þriggja punkta hæðarstillanleg öryggisbelti með rafstýrðum bílbeltastrekkjurum. Jumper er með stöðugleikastýringu, spólvörn og ABS með EBD hemlajöfnun og EBA hjálparhemlun.

Komdu við í Brimborg um helgina

Kynntu þér nýjan og hagkvæman Citroën Jumper sendibíl um helgina og sjáðu með eigin augum hvað þessi frábæri sendibíll hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar

Kynntu þér verð og búnað Citroën Jumper
Skoðaðu heimasíðu Citroën Jumper

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli