Citroën opinberaði á dögunum nýtt útlit á hinum sívinsæla C2 smábíl. Citroën C2 hefur verið á markaði í Evrópu síðan 2003 og hefur aldrei verið vinsælli enda hafa selst á tímabilinu hátt í 480 þúsund eintök af bílnum.
Enn fersklegra útlit Citroën C2
Nýi Citroën C2 er enn ferskari og léttari eftir upplyftinguna. Allar útlínur eru ávalari, krómumgjörð umlykur grillið að framan, ný litasamsetning er í boði að innanverðu en að utan verður hann fáanlegur með nýjum lit, Manitoba Gray.
Nýjar vélar í boði fyrir nýja Citroën C2
Citroën C2 verður í boði með nýuppfærði 1.4 lítra 16v 90 hestafla bensínvél sem kemur með nýja Stopp&Start kerfinu frá Citroën. Þessi nýja tækni mun stöðva vélina t.d. á rauðu ljósi og um leið og ökumaðurinn sleppir bremsunni, rýkur bílinn aftur í gang. Citroën áætlar að þetta muni spara allt að 10-15% meira eldsneyti en áður sérstaklega á annatímum í umferðinni. Citroën C2 verður einnig í boði með dísilvél, HDi 110 FAP en vélin er í senn mjög sparneytin og umhverfisvæn en eyðslan er aðeins 4.4 lítrar á hvern hundrað kílómeter og útblástur af CO2 er 119 g/km