Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fös. 02. maí 2008

Brosað út af eyrum á smábílnum Citroën C1

Brosað út af eyrum á smábílnum Citroën C1
Blaðakona EveCars prufukeyrði á dögunum smábílinn Citroën C1 og sagði brosið ekki hafa farið af andlitinu þann tíma sem hún ók um á bílnum – svo skemmtilegur var prufutúrinn frá upphafi til enda.

Sannkallaður borgarbíll

Hún var sérlega ánægð með vinnslu vélarinnar, fannst hún bæði fjörug og skemmtileg þrátt fyrir að vera bara eins lítra – enda hönnuð með borgarakstur í huga, þar sem umferð og þrengsli eru víða mikil.

Flott mælaborð

Blaðakonan var sérlega hrifin af miðstöðvarhnöppunum sem voru gegnsæir og lýstu í myrkrinu. Einnig finnst henni afar gott að sjá á mælana, einkum stöðuga sýn á hraðamælinn sem gerir að verkum að engin afsökun er tiltæk fyrir of hröðum akstri.

Mjög hagkvæmur í rekstri

Citroën C1 er frábær bíll í borgarumferðinni að mati blaðakonu EveCars því hann er allt í senn flottur, skemmtilegur, sparneytinn og hagkvæmur í rekstri

Nánari upplýsingar


Veftímaritið EveCars
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli