Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fös. 09. maí 2008

Sunday Times lofar nýjan Citroën C5

Sunday Times lofar nýjan Citroën C5

Gavin Conway blaðamaður hjá Sunday Times í London reynsluók nýlega Citroën C5 og tók sérstaklega eftir því hversu þéttur og massífur bíllinn var á allan hátt þannig að upplifunin minnti einna helst á dýran lúxusbíl.

Flott hönnun

Conway var sérlega uppveðraður af fallegri og vandaðri hönnun farþegarýmisins ekki síður en ávölum og straumlínulöguðum ytri línum bílsins sem vakið hafa svo mikla athygli allra þeirra sem séð hafa nýja bílinn.

Hin kraftmikla þögn C5

Síðan var það vélin í bílnum sem Conway prófaði, sem hann var alveg sérstaklega ánægður með. Conway ók bíl með kraft- og togmikilli tveggja lítra túrbódísilvél á hraðbrautunum. Fannst honum afar þægilegt hversu vel hljóðeinangraður bíllinn var því lítil sem engin hljóð bárust inní farþegarýmið.

Nánari upplýsingar

• Sjá umfjöllun Conway í heild sinni
• Flottar Citroën auglýsingar af Youtube og hér 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli