Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fös. 16. maí 2008

Ánægja með Citroën C4 Grand Picasso hjá AutoExpress

Ánægja með Citroën C4 Grand Picasso hjá AutoExpress
Paul Slater, blaðamaður hjá AutoExpress er ánægður með hinn nýja C4 Grand Picasso Comfort, sem Brimborg frumsýndi nýlega. Var hann sérstaklega ánægður með hið mikla notagildi sem bíllinn hefur og hversu auðvelt var að breyta uppröðun sætanna, en hann setti reiðhjólið sitt aftur í án vandræða.

Litað öryggisgler

Litað öryggisgler var í bílnum sem Slater reynsluók, þannig ekki var hægt að sjá inn í bílinn að utan. Hafði Slater því litlar áhyggjur af hjólinu og öðru dóti sem hann var með í bílnum.

Góðir aksturseiginleikar C4 Grand Picasso

Auk mikils notagildis C4 Grand Picasso Comfort finnst Slater mjög gott að aka bílnum og segir hann ferðalag sitt á þeim tíma sem hann hafi haft bílinn til umráða hafa verið þægilegt og afslappandi enda rýmið gott og notalegt.

Nánari upplýsingar

Sjá grein Slater í heild sinni
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli