Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mið. 11. jún. 2008

Citroën Jumper er lipur, öflugur og afar sparneytinn sendibíll

Blaðamaður frá Bílablaði Viðskiptablaðsins reynsluók Citroën Jumper fyrir stuttu og var mjög ánægður með bílinn. Hér að neðan gefur að líta umfjöllun blaðsins í heild. Vakin er athygli á að millifyrirsagnir eru Brimborgar.

Citroën Jumper er nýjung í sendibílaflóruna

Citroën-sendibílar hafa á undanförnum árum ekki verið í boði hérlendis nema í minnsta flokki sendibíla. Með nýja Jumper-bílnum hefur orðið breyting þar á og forvitnilegt að vita hvernig atvinnubílstjórum líkar gripurinn. Það má segja að með nýja framdrifna sendibílnum Citroën Jumper sé Brimborg komin með mjög breiða línu sendibíla sem henta hinum ólíkustu þörfum. Auk þess vill svo vel til að Citroën-umboðið, sem er í eigu Brimborgar, er með sölunni á Citroën Jumper ekki að stela neinu frá Ford-umboðinu í eigu sömu aðila sem býður breiða línu sendibíla. Citroën Jumper fyllir einmitt vel í það skarð sem er í framleiðslulínu Ford í millistærðarflokki.

Tvær gerðir í boði af Citroën Jumper

Tvær gerðir af Jumper eru í boði hér, en hægt er að fá þessa bíla í fjórum mismunandi sendibílaútfærslum auk smárútuútfærslu. Annar er með átta rúmmetra hleðslurými og hinn tíu rúmmetra. Jumper L1H1 er rúmlega tveir metrar á breidd og tæpir fimm metrar að lengd og tekur allt að 1.155 kg af vörum. Stærri bíllinn, L2H1, er jafn breiður og L1H1 en rúmir 5,4 metrar að lengd og ber einnig allt að 1.115 kg. Þessir bílar eru að grunni til nákvæmlega sömu sendibílarnir og PSA-samsteypan framleiðir undir nafninu Peugeot.

Citroën Jumper er bæði öflugur og sparneytinn sendibíll

Við tókum stærri bílinn í prufuakstur um helgina og óhætt er að segja að aksturshæfni þessa bíls svíkur engan. Maður situr mjög hátt í þessum bíl og útsýni er því sérlega gott. Hann er með ABS-hemlakerfi, EBD-hemlajöfnun og EBA-hjálparhemlun. Þessi sendibíll er í flokki stærri sendibíla og er einstaklega hagkvæmur í rekstri enda eyðir vélin aðeins um 6,8 lítrum á langkeyrslu og 8,2 innanbæjar. Hann er samt með afkastamikilli 16 ventla hundrað hestafla 2,2 lítra túrbódísilvél með 250 Nm togi. Það er því nægt afl og góð snerpa í þessum bíl. Þá er hann með 5 gíra beinskiptum gírkassa og kemur á 15 tommu felgum.

Citroën Jumper er einkar lipur og þægilegur í notkun

Citroën Jumper er hannaður með öryggi og þægindi ökumanns í huga. Gírstöngin er vel staðsett á syllu í mælaborði og tekur því ekkert pláss í gólfi. Þetta er sniðug og margreynd lausn sem er partur af hinni margrómuðu frönsku sérvisku í bílahönnun.
Önnur einkennileg sérviska í hönnun á Jumper er að handbremsustöng er ekki hægra megin við ökumannssæti eins og í flestöllum öðrum sendibílum. Heldur hafa þeir handbremsustöngina úti við hurð vinstra megin við sætið. Þetta virkar óneitanlega sérkennilega og ekki síst þegar nota þarf handbremsu við að taka af stað í brattri brekku. Sennilega er það þó vaninn sem þarna ræður mestu og á móti kemur að gólfpláss milli sæta er óskert og þar er því mögulegt að bæta þriðja sætinu. Í akstri virkaði bíllinn mjög lipur og þægilegur, hvort sem keyrt var á þröngum borgarstrætum eða á holóttum malarvegi. Bakkskynjarar auka líka mjög öryggi ökumanns við að bakka að hleðsludyrum eða við að leggja í þröng stæði. Þá vó þungt að ökumannsrýmið í þessum bíl var algerlega lokað frá hleðslurými
og því var bíllinn ágætlega hljóðlátur.

Mikið rými fyrir farþega í Citroën Jumper

Í farþegarýminu eru m.a. glasahaldarar, rúmgóð geymsluhólf og niðurfellanlegt borð. Í heild er mælaborðið mjög vel hannað og smart í útliti eins og vænta mátti af hönnuðum Citroën. Sætin eru upphitanleg og ökumannssætið er hæðarstillanlegt og með armpúða. Fyrsta tilfinning var að ökumannssæti væri full stíft, en við nánari kynni vandist það ágætlega í akstri, enda heldur það vel við mjóhrygginn. Það mætti þó ætla að sendibílstjórar sem eyða öllum vinnudegi sínum um borð í svona bíl myndu fremur kjósa stól á loftpúðum. Þá er Jumper búinn hljómtækjum með geislaspilara sem stjórna má frá fjölstillanlegu stýrishjólinu. Þá er einnig unnt að stilla hæð aðalljósanna með tilliti til hleðslu bílsins hverju sinni. Hliðarspeglarnir eru að sjálfsögðu rafdrifnir og með stefnuljósum
og aðkomuljósum.

Webasto-miðstöð er í Citroën Jumper

Jumper er með sjálfvirkri Webasto-miðstöð sem viðheldur eðlilegum vinnsluhita á vél og kælivatni. Hann er því fljótur að hitna og viðhalda hita, jafnvel í miklum kulda.

Fjölhæfni er í fyrirrúmi hjá Citroën Jumper

Jumper er með rennihurðum á báðum hliðum auk tvöfaldrar afturhurðar með tveimur rúðuþurrkum. Allt aðgengi um hleðslurýmið er afar gott og afturhurðir með 90° og 180°opnun. Þá er stærri bíllinn með breiðari hliðarhurðum en sá minni, sem gerir alla
hleðslu enn þægilegri. Hleðslurýmið, sem er með góðu ljósi, er með klæðningu
á gólfi og báðum hliðum til að verja bílinn gegn skemmdum. Það er án efa kostur að umboðið skuli flytja bílana inn með gólf- og veggklæðningu beint frá framleiðanda. Gólfklæðningin hefur þá sérstöðu að þótt hún sé úr mjög hörðu efni og auðþrífanlegu, eru pressaðar í hana micro-rifflur sem gera gólfið stamt. Þetta er mikill kostur þegar verið er að flytja lausa kassa sem er þá ekki endilega nauðsynlegt að óla niður.

Öryggi farþega Citroën Jumper tryggt

Jumper er sannarlega öruggur sendibíll enda búinn öryggispúðum í stýri og mælaborði. Við öll sæti eru þriggja punkta hæðarstillanleg öryggisbelti með rafstýrðum bílbeltastrekkjurum. Jumper er með stöðugleikastýringu, spólvörn
og ABS með EBD-hemlajöfnun og EBA-hjálparhemlun.

Gæðakerfi Citroën stöðugt í endurskoðun

Það sem kannski hefur pirrað kaupendur franskra bíla mest í gegnum tíðina er að það skuli vera smáatriðin sem sífellt valdi vandræðum. Þar er það einkum rafkerfi, skynjarar, rofar og annað slíkt sem orsakað hefur flestar bilanir. Þetta á ekki bara við um bíla PSA-samsteypunnar Citroën og Peugeot, heldur ekki síður um bíla frá Renault.
Bílarisarnir Volkswagen í Þýskalandi og Fiat á Ítalíu hafa reyndar ekki verið lausir við þetta heldur. Nú virðist sem Citroën sé að taka sig á í þessum efnum og hefur gæðaþröskuldurinn verið hækkaður mikið. Yfirmaður þessa átaks þekkir þetta afar vel á eigin skinni, því hann vann einmitt við að taka við umkvörtunum viðskiptavina vegna galla. Er nú farið að gera mun ítarlegri þolprófanir á Citroën bílunum áður en þeir eru settir í framleiðslu. Var nýi Picasso-bíllinn fyrstur til að fara í gegnum nýja þolprófið. Er því von til að þetta hækki til muna ánægjustuðul Citroën-eigenda í framtíðinni. Þeir geti nú óhræddir nýtt sér þá snilli í útlitshönnun, þægindum og sparneytni sem franskir bílahönnuðir eru
þekktastir fyrir.

Mikið fyrir peningana

Citroën hefur í krafti sérstöðu í hönnun verðlagt sína bíla fremur hátt, Jumperinn á 3,6 til 3,7 milljónir, en samt má telja að bílarnir standist öðrum ágætlega snúning ef tekið er tillit til alls þess búnaðar sem þeim fylgir.

Nánari upplýsingar

Heimasíða Brimborgar



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli