Citroën C2, C3 og C3 Pluriel fá upplyftingu fyrir sumarið
Citroën C2, C3 og C3 Pluriel fá upplyftingu fyrir sumarið
Á AutoblogGreen heimasíðunni má finna dóma um ýmsar visthæfar bifreiðar. „Græni bílabloggarinn“ Sebastian Blanco lýsti nýlega ánægju sinni með sumarlega upplyftingu á nokkrum Citroën smábílum.
Umhverfisvænn bónus
Blanco var hrifinn af nokkrum breytingum sem Citroën hefur kynnt á C2, C3 og C3 Pluriel sem hann sagði vera ferskar og upplagðar fyrir sumarið. Ekki spillir heldur fyrir að koltvíoxíðútblástur bílanna er lægri en fyrir breytingarnar. „Ef þú hrífst af útliti Citroën smábílanna eins og ég, þá ættirðu að taka stílbreytingunni fagnandi. Sú staðreynd að einn þeirra lætur aðeins frá sér 113g af CO2 á kílómetra er aðeins aukabónus“ segir bloggarinn Blanco meðal annars.
Upplífgandi útlitsbreyting
Með nokkrum véla- og útlitsbreytingum hefur Citroën tekist að minnka koltvíoxíðútblástur smábíla sinna þannig að nokkrir þeirra eru undir 120g markinu. Einnig eru ýmsar smávægilegar útlitsbreytingar sem setja svip sinn á þessa vinsælu smábíla. Citroën C2 hefur gengist undir útlitsbreytingu og fengið nýtt grill og framstuðara á meðan C3 hefur fengið nýja liti og upplyftingu á ýmsum búnaði. Þar á meðal eru endurbætt loftkæling, rúðuþurrkur með regnskynjara, sjálfvirk aðalljós ofl.