Nýju vélarnar eru af tegundinni VTi 120 hestafla og THP 150 hestafla, sem báðar eru 1,6 lítra. Þær voru þróaðar í samvinnu við BMW og koma til með að bæta sparneytni og minnka útblástur miðað við núverandi C4 vélar. Ný Michelin Energy Saver dekk með lægra mótstöðuafli, auka svo líka á sparneytnina. Citroën C4 fær einnig nýtt útlit eða a.m.k. smá upplyftingu með sveigðari vélarhlíf, nýju grilli og krómuðum línum.
C4 verður líka tæknivæddari eftir breytingarnar því hann verður útbúinn með evrópska MyWay leiðsögukerfinu, hljóðkerfi með innbyggðu 10 GB hörðu drifi, Bluetooth og USB tengingu. Auk þess eru öryggisatriðin í fyrirrúmi í endurbættum C4, sem búinn verður hraðastilli, veglínuskynjara og bakkbremsu, svo ökumönnum C4 ætti ekki að vera neitt að vanbúnaði.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.