Hinn heimsfrægi keppnisökuþór, Sebastian Loeb, á Citroën, varð um helgina heimsmeistari í rallakstri. Þrátt fyrir að koma annar í mark í japanska rallinu tryggði Loeb sér engu að síður heimsmeistaratitil ökumanna. Sebastian Loeb hefur ekið frábærlega vel fyrir Citroën á árinu og hefur talsverða yfirburði á næstu keppendur; með 107 stig meðan Marcus Grönholm, á Peugeot, sem vermir annað sætið, hefur 71 stig. Citroën leiðir einnig keppni bílaframleiðanda, þar á meðal Peugeot, Ford og Subaru. Sjáðu meira hér.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.