Í útliti þótti C5 einkar myndarlegur og sóma sér vel sem arftaki fyrri kynslóða. Róttækustu breytingarnar voru taldar vera að aftanverðu þar sem ljósin líkist nú meira þýskri hönnun. Álitsgjafi AutoTrader var líka hrifinn af innréttingunni sem honum fannst einnig hafa aukin þýsk gæði innan- borðs. Hann tók þó fram að C5 væri enn trúr sínum frönsku rótum, þrátt fyrir að vera orðinn aðeins þýskari í útliti.
Blaðamaðurinn taldi notagildið hafa minnkað aðeins á kostnað betra útlits þar sem farangursrýmið væri ívið minna en í fyrri C5 módelum. Hann tók samt fram að 439 lítra farangursrýmið væri vel rúmt og að nóg pláss væri fyrir farþegana. Hann blés á alla gagnrýni um akstursánægju og sagði hana betri en í BMW. Blaðamaður Auto- Trader prófaði C5 með 2 l dísilvél og gaf henni einkunnina átta af tíu mögulegum.
Í öryggismálum fékk C5 fullt hús stiga (10/10) hjá AutoTrader sem sagði allan öryggisbúnað bílsins til fyrirmyndar enda með fimm stjörnur í EuroNCAP prófunum. Annar staðalbúnaður fékk líka góða dóma og heildarniðurstaðan var sú að Citroën C5 stæði framar keppinautum sínum, hvað varðar þægindi og aksturslag.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.