Nú stendur undirbúningur sem hæst að vali „Bíls ársins 2006“ á Íslandi en úrslit verða kynnt þann 23. október. Að valinu standa sem fyrr samtök íslenskra bílablaðamanna ( BÍBB ).
Í flokki smábíla og millistórra bíla er Citroën C4 meðal tilnefndra í flokknum. Þetta kemur okkur hjá Brimborg ekkert á óvart enda hefur C4 hvarvetna hlotið fádæma góðar viðtökur hjá almenningi og hjá erlendum bílablaðamönnum vegna framúrskarandi fallega hönnun, tækninýjungar og síðast en ekki síst frábæra útkomu úr öryggisprófunum.
Í dómnefnd BÍBB í vali bíls ársins eru að þessu sinni þau Stefán Ásgrímsson fyrir FÍB, Sigurður Már Jónsson fyrir Viðskiptablaðið, Guðjón Guðmundsson fyrir Morgunblaðið, Ómar Ragnarsson fyrir RÚV, Njáll Gunnlaugsson fyrir Bílar og Sport, Sigurður Hreiðar Hreiðarsson, sjálfstætt starfandi, og Steinunn Stefánsdóttir fyrir Fréttablaðið.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.