Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fim. 20. nóv. 2008

Citroën C5 besti innflutti bíllinn

Citroën C5 varð fyrir skömmu þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn besti innflutti bíllinn í vali japanskra bílablaðamann á Bíl ársins. Citroën bar þar sigurorð af bílum á borð við Audi A4, Jaguar XF og Fiat 500. Þar að auki hafnaði C5 í öðru sæti á listanum yfir bestu bíla ársins, á undan Nissan GT-R.

Japanskir bílar einoka verðlaunin


Verðlaunin fyrir Bíl ársins í Japan voru fyrst afhent árið 1980 en síðan þá hafa nær einvörðungu innlendir bílar hampað hinum eftirsótta titli en Japanir standa góðan vörð um innlenda framleiðslu. Því verður það að teljast markverður árangur að Citroën C5 hafi náð öðru sæti í þessu vali. Þetta er hinsvegar í annað sinn sem Citroën bifreið er verðlaunuð sem besti innflutti bíllinn en lúxusbifreiðin Citroën C6 þótti vera besta innflutta bifreiðin árið 2006.

Frekari upplýsingar


Nánar um val japönsku dómnefndarinnar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli