Hið virta tímarit Auto Express reynsluók fyrir skömmu hinum nýja Citroën Berlingo Multispace. Ekki er hægt að segja annað en bíllinn hafi fallið í góðan jarðveg því hann hlaut fullt hús stiga, fimm stjörnur.
Ekki dæma bílinn eftir útlitinu
Auto Express hrósar bílnum sérstaklega fyrir hversu rúmgóður hann er. „Um leið og þú sest inn í Multispace þá skilurðu hvað það er við bílinn sem er svo aðlaðandi. Þegar afturdyrnar eru opnaðar blasir við eitt besta fjölnota farþegarýmið á bílamarkaðnum í dag. Allir farþegar fá feykinóg pláss ásamt því nóg er af geymsluplássi. Bæði í hliðarhólfum í hurðum og svo einnig í sniðugum geymslurýmum fyrir ofan farþega, svipuð þeim sem fyrirfinnast í flugvélum.“ Þá er einnig minnst á það að með því einu að leggja aftursætin niður er geymslurýmið orðið nærri 3.000 lítrum. Þá var líka haft orð á því að útlit Multispace gæfi ekki til kynna hvernig væri að aka bílnum. „Þó svo að hann líti út eins og sendiferðabíll þá ekur hann alls ekki sem slíkur. Akið inn í krappa beygju og þá finnið þið hversu gott grip hann hefur og hve lipur hann er,“ segir í dómi Auto Express.
Engin er rós án þyrna
Eins og gefur að skilja var þó eitt og annað sem tímaritinu þótti athugavert við Berlingo Multispace. „Þó svo að hann skarti stílhreinni hönnun þá sýnir Berlingo greinilega uppruna sinn sem atvinnubíll. Þó svo að maður eigi erfitt með að segja bílinn fallegan þá hefur hann vissulega karakter.“ Einnig þótti pennum Auto Express díselvélin í ódýrustu útgáfu bílsins vera full kraftlítil. En þessi umkvörtunaratriði verða þó að teljast smávæg því þau gátu ekki komið í veg fyrir það að Citroën Berlingo Multispace fékk fullt hús stiga.