Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mán. 15. des. 2008

Citroën kom, sá og sigraði á Írlandi

Citroën C5 er bíll ársins á Írlandi að mati írskra bílablaðamanna.
Citroën C5 stóð uppi sem sigurvegari í vali írskra fagaðila á bíl ársins. Það má með sanni segja að Citroën hafi komið, séð og sigrað á þessari verðlaunahátíð því franski bílaframleiðandinn vann í fimm flokkum. C5 hreppti tvenn verðlaun annars vegar sem bíll ársins, en einnig sem fjölskyldubíll ársins. Citroën Berlingo var valinn sendibíll ársins á meðan Berlingo Multispace var kosinn fólksflutningabíll ársins. Að lokum var Citroën C-Crosser Commercial kosinn sem besti jepplingur/sendiferðabíll ársins.

Annar sigur Citroën frá upphafi


Verðlaunin um bíl ársins á Írlandi hafa verið veitt árlega frá árinu 1978 en þá var díselútgáfa af VW Golf valinn bíll ársins. Verðlaunin, sem kennd eru við Semperit dekkjavörumerkið, hafa einu sinni áður fallið í skaut Citroën bifreiðar en það var árið 1998 þegar Citroën Xsara var valinn bíll ársins. Það eru samtök írskra bílablaðamanna, IMWA, sem standa á bakvið verðlaunahátíðina.


 

Frekari upplýsingar


Nánar um sigurvegara Semperit verðlaunanna
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli