Berlingo fellur vel í kramið hjá breskum flutningafyrirtækjum.
Citroën hreppti þrenn verðlaun á Fleet Van verðlaunahátíðinni í Bretlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru afhent en á bakvið verðlaunin standa flutningafyrirtæki og ýmsir aðrir fagaðilar. Citroën Berlingo hreppti aðalverðlaunin sem besti sendiferðabíllinn en einnig var hann heiðraður sem besti litli sendiferðabíllinn. Citroën Nemo fullkomnaði svo þrennu Citroën með því að vinna til verðlauna sem besta sendibifreiðin fyrir borgarakstur.
Heildarpakki sem á sér engan jafningja
Árangur Citroën er einstaklega góður í ljósi þess að samkeppnin var býsna hörð enda miklar kröfur gerðar til bifreiðanna af hálfu dómnefndar. Dómnefnd hreifst af nýju útliti Berlingo ásamt því að bíllinn þótti með umhverfisvænni hönnun sinni og góðri plássnýtingu bjóða upp á heildarpakka sem enginn af samkeppnisaðilunum gat jafnað.