Smelltu á flokk

Citroën frétt 

04. september 2010
Citroën | fim. 05. feb. 2009

Citroën C4 Grand Picasso sankar að sér verðlaunum

Þeir gerast ekki betri en Citroën C4 Grand Picasso

Á nýafstaðinni verðlaunahátíð breska bílablaðsins What Car? var Citroën C4 Grand Picasso valinn besti fjölnotabíllinn á síðastliðnu ári. Þetta er þriðja árið í röð sem bíllinn vinnur til þessara virtu verðlauna. „Bíllinn er ekki bara stór heldur er hann einnig fjölhæfur, stílhreinn, auðveldur í akstri og á viðráðanlegu verði,“ segir í niðurstöðu dómnefndar sem hældi bifreiðinni óspart. „Enginn bíll er hæfari fyrir starfið sem fylgir því að flytja til þig, frúna og krakkana. Fjölskyldumiðaðar bifreiðar gerast ekki betri en þetta,“ segir ennfremur í niðurstöðu dómnefndar.

Beðið eftir C3 Picasso

 

Stjórnandi Citroën í Bretlandi, Xavier Duchemin, sagði við móttöku verðlaunanna að það væri mikill heiður fyrir Citroën að hljóta þessi eftirsóttu verðlaun. „Við erum heiðruð og hæstánægð með að hljóta þessi verðlaun þriðja árið í röð. Ofan á þetta þá erum við sérstaklega spennt fyrir hinum nýja Citroën C3 Picasso sem er væntanlegur á markaðinn innan fárra mánaða.“ Þess ber einnig að geta að auk fyrrnefndra verðlauna var C4 Grand Picasso einnig valinn umhverfisvænsti fjölnotabíllinn og ættu því forsvarsmenn Citroën að geta verið sáttur við uppskeruna á What Car? verðlaununum.

 

Frekari upplýsingar



Nánar um niðurstöðu dómnefndar What Car?

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli