Tilkynnt var fyrr í vikunni að PSA Citroën Peugeot Group fái 3 milljarða evru lán frá franska ríkinu. Félagið skuldbindur sig í staðinn til að loka engum verksmiðjum í Frakklandi og til að segja ekki upp starfsfólki. Í tilkynningu frá félaginu segir að fjármununum verði aðallega varið til þróunar sparneytnari farartækja á sem hagstæðustu verði.
Óbreytt markaðshlutdeild
Samkvæmt ársskýrslu félagsins, sem kynnt var í dag, hélt það stöðugri markaðshlutdeild á síðasta ári sem telst góður árangur miðað við gríðarlegar sviptingar á markaði. Markaðshlutdeildin er 5% á heimsvísu og 13,8% í Vestur-Evrópu.
Christian Streiff, stjórnarformaður PSA Peugeot Citroën, segir forgangsröðunina á hreinu hjá fyrirtækinu. Beita þurfi öllum leiðum til að minnka útgjöld þegar í stað, á sama tíma og félagið þurfi að búa sig undir framtíðina. Þar verði lögð áhersla á þróun umhverfisvænni bifreiða á hagstæðu verði sem stuðla muni að vexti félagsins þegar efnahagsástandið fari batnandi.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.