Í kjölfar endurbættra reglna varðandi kostnað og umsvif í heimsrallýinu (WRC) hefur Citroën boðað endurkomu sína árið 2007.
Hækkun á kostnaðarliðum tengdum heimsrallýinu í nóvember 2004 varð til þess að stjórnarformaður PSA Peugeot Citroën, Jean Martin Folz, ákvað að PSA myndi hætta þátttöku í þessari keppni frá og með lokum keppnistímabilsins 2005.
Í kjölfarið leiddu skoðanakannanir í ljós að umrætt heimsrallý er mjög ákjósanlegur vettvangur fyrir PSA til að kynna vörumerki sín og eftir að stjórnendur rallýsins ákváðu að breyta reglum á ný var ákveðið að PSA héldi áfram í þessari vinsælu keppni.
Á keppnistímabilinu á árinu 2006 munu félagarnir Sebastian Loeb og aðstoðarmaður hans, Daniel Elena, halda áfram þátttöku í keppninni en nú sem einkarekið lið.
Citroën mætir sterkur til leiks 2006 með nýjum Citroën C4 WRC.
Citroën hefur náð verulega góðum árangri í heimsrallýinu á undanförnum árum og má sem dæmi nefna að Citroën hreppti heimsmeistaratitil framleiðanda bæði fyrir árin 2003 og 2004 og ennfremur sigruðu ökumenn Citroën 2004 og 2005.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.