Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | fim. 02. apr. 2009

Reynsluakstur nýja Citroën C3 Picasso

Citroën C3 Picasso er væntanlegur í almenna sölu síðar í mánuðinum og er hans beðið með allnokkurri eftirvæntingu.

Citroën C3 Picasso er væntanlegur í almenna sölu síðar í mánuðinum og er hans beðið með allnokkurri eftirvæntingu. Hann er sparneytinn og nettur og búist er við að slíkir bílar seljist betur á næstunni en stærri bílar sem eyði meiru. Bíllinn sem Autocar prufuók er með 1.6 lítra HDi 90 hestafla VT vél. Þetta er í fyrsta skipti sem Autocar prufuekur dísilútgáfu bílsins og í fyrsta skipti sem tímaritið prófar hann í Bretlandi.

Gagnrýnandi Autocar kemst þannig að orði að ef litið sé á hreinar staðreyndir um bílinn virðist eftir litlu að slægjast. Eins og Nissan Note og Ford Fusion, sé C3 Picasso upphækkaður hlaðbakur og hagnýtari kostur en lægri bílarnir. Munurinn sé hins vegar sá að Citroën C3 Picasso sé líklega fyrsti bíllinn í þessum flokki sem þú viljir láta sjá þig í. Fáir bílaframleiðendur bjóði nú eins marga nýja, vel hannaða bíla og Citroën, og bæta megi C3 Picasso á þann lista. Hann er ekki eins framúrstefnulegur og nýlegir hugmyndabílar framleiðandans en samt sem áður fersk og töff nálgun á kassalaga fjölnotabílinn.

Frábært útsýni og rúmgóður

Sama stef heldur áfram innandyra. Hvar sem þú situr er útsýnið gott og mælaborðið lítur vel út og er auðvelt í notkun. Tölurnar gefa til kynna að bíllinn sé rúmbetri en keppinautarnir og segir gagnrýnandi Autocar það eflaust rétt. Hann telur það til lasta bílsins að aftursæti sem hægt sé að renna fram og aftur sé eina brellan sem farþegarýmið bjóði upp á.

Autocar segir C3 Picasso svara til keppinautanna þegar að aksturseiginleikum komi. Það sé gott að aka bílnum, hann dragi í sig mestu höggin úr bresku malbiki og sé hljóðlátur. Ef ekið sé um á bílnum fullhlöðnum séu þó allar líkur á að ökumaður sakni meira afls en 90 hestafla dísilvélin bjóði upp á. Það sé þó í boði í dýrari 110 hestafla útgáfu vélarinnar. Þá saknar hann að stöðugleikastýrikerfi sé staðalútbúnaður í öllum útgáfum bílsins.

Er bíllinn þess virði að kaupa hann?

Já, segir Autocar. Þrátt fyrir smávægilega vankanta sé C3 Picasso fjölnotabíllinn sem beðið hafi verið eftir og sem verði ánægjulegt að eiga.

Tölfræði prufuakstursins:

Hraði:
• 0-100 km/klst á 14,7 sekúndum
• Hámarkshraði 172 km/klst
Stærð:
• Þyngd 1364 kg
Eyðsla:
• Blandaður akstur 4 lítrar á hundraði
• CO2 útblástur 128 g/km
Vél
• Rúmtak 1560 cc
• Mesta afl 90 hestöfl við 4000 snúninga
• Mesta snúningsátak 72 kg við 1750 snúninga

Nánari upplýsingar:

Umfjöllun á vef Autocar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli