Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | mán. 31. okt. 2005

Samstarf Citroën og BMW

 

Nú styttist í að árangur af samstarfi PSA Peugeot-Citroën og BMW líti dagsins ljós. Samvinna bílaframleiðandanna felst í framleiðslu byltingarkenndra bensínvéla, sem ætlað er að skila allt að 170 hestöflum. Vélarnar verða notaðar í millistórum bílum beggja fyrirtækjanna auk þess sem þær verða boðnar í nýjum Mini.

Fyrstu vélarnar, svokallaðar Atmospheric vélar, verða 1600 rúmsentimetrar og skila 115 eða 143 hestöflum með forþjöppu.

Þess má geta að Citroën framleiðir einnig dísilvélar í samstarfi við aðra bílaframleiðendur, s.s fyrir Ford, Volvo, Jagúar og Land Rover.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli