Hægt er að endurhlaða C1 ev’ie bílinn að fullu á 6-7 klukkustundum í gegnum venjulega innstungu sem gerir bílinn tilvalinn borgarbíl til hvort sem er heimilisnota eða atvinnu.
Citroën C1 ev’ie er settur saman í Bretlandi og er meira en helmingur virðis bílsins fólginn í framleiðslunni þar. Hún skapar störf í landinu, auk þess að setja Breta í forystu hvað varðar framleiðslu rafbíla. ECC býst við að framleiða um 500 C1 ev’ie bíla næsta árið, og að sú tala hækki í 2000 til 4000 bíla árið 2010, en það veltur á eftirspurn og stuðningi stjórnvalda.
Xavier Duchemin, forstjóri Citroën í Bretlandi, segir framleiðandann ákveðinn í stefnu sinni um að framleiða vistvænni kosti fyrir ökumenn og það sé Citroën sérstök ánægja að sjá ECC fyrir Citroën C1 bílnum í þessum tilgangi.
Við þetta bætir David Martell, aðalframkvæmdastjóri ECC, „Við teljum þetta fyrsta alvöru valkostinn í stað bensín- eða dísilbíls. Aksturinn er eins og í bensínbíl og hann er vel búinn til aksturs í hvaða borg eða bæ í Bretlandi. Lykillinn að því að smíða góðan rafbíl er skilvirkt rafhlöðukerfi. ECC hefur búið til háþróað og vandað kerfi sem, í samvinnu við endurnýtanlegan hemlunarkraft, sér bílstjóranum fyrir mun meiri drægni og betri frammistöðu.“
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.