Frumgerð hefur verið sett upp af færibandi til framleiðslunnar í verksmiðjum PSA í Sochaux í Frakklandi, þar sem nokkrir Peugeot 3008 Hybrid4 þróunarbílar hafa verið byggðir, en þeir eru búnir sömu dísil-rafvélalínunni og Citroën Hypnos.
Citroën hefur líka passað vel upp á að tvíorkukerfin þeirra virki jafnvel með bensín- og dísilvélum og séu hönnuð með hvort tveggja í huga án aukatilkostnaðar.
Þótt Citroën sé þess fullviss að aksturseiginleikar, sparneytni og útblástur komi til með að batna verulega á þeim tíma sem líði þar til almenn framleiðsla hefjist á dísiltvíorkubílunum, þá verði stóra skrefið stigið með næstu kynslóð sem verði knúin lithium rafhlöðum eins og þeim sem séu nú í Tesla Roadster rafbílnum.
Þetta komi til með að gerast á sama tíma og tengiltæknin komi á markað, sem verði annað risavaxið skref í átt að sparneytnari bílum og minni útblæstri.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.