Verkfræðingur Citroën, Didier Raso, segir bílinn enn teljast hugmyndabíl, en að framleiðandinn búi sig undir þann möguleika að notkunar vistvænnar tækni verði krafist í auknum mæli í WRC rallinu í framtíðinni.
„Citroën Racing vildi sýna getu sína til að aðlagast vistvænni tækni í rallakstri,“ segir Raso. „Ef kæmi til þess að reglurnar leyfi notkun tvíorkutækni, verðum við í stöðu til að bregðast strax við.“
Dani Sordo reynsluók bílnum á malbiksbraut í Faro í Portúgal eftir WRC keppnina þar á dögunum, og prófaði rafmótorinn einnig í almennri umferð.
„Þegar ekið er á raforku, getur maður keyrt hljóðlaust gegnum þorp, sem er afar óvenjulegt á keppnisbíl,“ sagði Sordo. „Það er vistvænna og einnig þægilegra fyrir starfsliðið.“
„Á keppnisbrautinni myndi ég segja að bíllinn hagaði sér aðeins öðruvísi en hefðbundni C4 WRC bíllinn, með meiri þyngd að aftan.“
Spánverjinn prófaði einnig raf„boost“-tæknina. „Þegar skotið kemur, eru áhrifin tilkomumikil,“ segir hann.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.