Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mið. 20. maí 2009

Nýi Citroën Nemo Multispace er fjölhæfur og þægilegur

Citroën Nemo Multispace er fjölbreyttur og rúmgóður fjölskyldubíll
Hvort sem litið er til sparneytninnar eða verðsins, lítils útblásturs koldíoxíðs eða mikils rýmis, þá er ljóst að Nemo Multispace er svar Citroën við breyttum markaðsaðstæðum. Viðskiptavinir leita nú í auknum mæli að ódýrari bílum sem jafnframt eru sparneytnir, vistvænir og praktískir.

Fjölskylduútgáfa af knáa sendibílnum

Þessi fjölnotaútgáfa af verðlaunaða litla flutningabílnum Citroën Multispace höfðar til þeirra sem leita að einföldu farartæki með fjölbreytta virkni og rými fyrir alla fjölskylduna.
Í umfjöllun á vef Car Pages segir að það sé þó varasamt að dæma Nemo Multispace sem einfaldan. Honum fylgi öll nútímaþægindi svo sem fjarstýrð samlæsing, rafmagn í rúðum, vökvastýri, aðskilin aftursæti, fjórir loftpúðar, ferðatölva og meira að segja heimreiðarljós sem staðalbúnaður.

Tvöfaldar rennihurðir að aftan veita þægilegt aðgengi fyrir farþega, jafnvel við þröngar aðstæður. Stór afturhlerinn, með Citroën merkinu fyrir miðju, gerir kleift að hlaða bílinn á sem auðveldastan hátt og veitir þægilegt aðgengi að farangri.

Útsýni bílsins er til fyrirmyndar og ökumaður getur auðveldlega fundið hentuga stöðu þökk sé stillanlegu stýri og stillanlegu baki og armpúða í sæti. Til að gera aksturinn sem þægilegastan og ánægjulegastan er vökvastýri staðalbúnaður, auk rafmagns í framrúðu og hliðarspeglum. Til að kæla farþega niður á heitum dögum er hægt að fá loftkælingu sem aukabúnað í Nemo Multispace.

Afþreyingin tryggð

Citroën Nemo Multispace er vel útbúinn afþreyingarbúnaði. Hágæða hljómflutningstæki með fjórum hátölurum og RDS útvarpi með geislaspilara, sem hægt er að tengja MP3 spilara. Þá er handhæg 12 volta innstunga sem nota má fyrir ýmis raftæki.

Þægindi eins og ferðatölva og heimreiðarljós eru staðalbúnaður á meðan Bluetooth tenging er fáanleg sem aukabúnaður. Stjórntakkar eru í miðju mælaborði og einnig er innbyggður hljóðnemi í ljósi yfir framsætum. Nemo Multispace er einnig fáanlegur með bakkskynjurum og hraðaviðvörunarkerfi sem lætur ökumann vita þegar farið er yfir ákveðinn hraða.

Tvenns konar vélar eru fáanlegar í Nemo Multispace. Annars vegar er það 1.4 lítra bensínvél og hins vegar 1.4 lítra HDi dísilvél. Bensínvélin eyðir 6,7 lítrum á hundraði og gefur frá sér 165 g/km af koldíoxíði. Dísilvélin eyðir 4,5 lítrum á hundraði og gefur frá sér 119 g/km af koldíoxíði. Dísilvélin er fáanleg með annaðhvort staðal- eða Sensodrive gírskiptingu. Sensodrive gírskipting Citroën býður upp á þægindi tveggja fetla aksturs sjálfskiptingarinnar, en sparneytni og lágan útblástur beinskiptingarinnar.

Nánari upplýsingar:

Umfjöllun á vef Car Pages

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli