Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fim. 28. maí 2009

Citroën kynnir útlit innandyra í Citroën DS INSIDE hugmyndabílnum

Citroën DS INSIDE hugmyndabíllinn
Citroën kynnir til sögunnar nýja túlkun á DS INSIDE hugmyndabílnum sem gefur hugmynd um útlit fyrsta DS bílsins sem seldur verður á almennum markaði. Nýja útgáfan sviptir hulunni af innviðum bílsins og eykur enn á aðdráttarafl hans. Hátískulegt rýmið innandyra hefur einstakan og munúðarfullan blæ.

Sérhönnuð sætin voru hönnuð með vandvirkni húsgagnabólstrara. Áferð þeirra, sem minnir á lúxus armbandsúr, verður enn glæsilegri með litabreytingum í leðrinu á sætisbökum sem fara úr dimmsvörtu yfir í beinhvítt.

Innviði DS INSIDE eru boð í ferðalag. Farþegar sitja þægilega í fáguðu umhverfi. Stíll mælaborðsins er flæðandi og léttur á meðan keilulaga miðjustokkurinn, nett stýrið og lág, umvefjandi sætin veita kraftmikla tilfinningu. Allt innandyra gefur tilfinningu að vel sé vandað til verka, allt frá svörtu króminu hér og þar inni í bílnum, að þykku gæðateppinu.

Hátískuhönnun


Að innanverðu er loftið klætt gæðaleðri og er beinhvítt með perlumóðuráferð. DS merkið sem skreytir loftið er dæmi um hvernig hægt verður að persónusníða DS3 bílinn.
DS merkið er kraftmikið merki, sem lýst er í tveimur orðum, Different Spirit. Merkið er nútímalegt og sérstakt og, eins og DS nafnið sjálft, fær sitt DNA úr sögu Citroën.

Býr yfir munúð og klæðist ljósu


Ljósgrár liturinn inni í INSIDE bílnum er klæddur þunnri perlumóðuráferð þannig að minnir á snjó eða sykurbráð. Hönnun yfirbyggingar DS INSIDE er á sama tíma fjörmikil og fáguð, nett og kraftmikil, með fallega krómskreyttum fylgihlutum. Sérhver lína er hlaðin sköpun, sérstaklega fljótandi þakið og hákarlauggaútlitið á b-stólpanum fyrir miðju bílsins.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli