Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mán. 08. jún. 2009

Hugmyndabíllinn GT by Citroën fer víða á næstunni

GT by Citroën er eins og af öðrum heimi enda fyrst hannaður fyrir tölvuleikinn Gran Turismo 5

GT by Citroën vakti verðskuldaða athygli á bílasýningunni í París og hlaut þar Louis Vuitton Classic Concept Award sem veitt eru hugmyndabílum. GT by Citroën er samstarfsverkefni Citroën og japanska kappakstursleikjaframleiðandans Polyphony Digital. Bíllinn var hannaður fyrir tölvuleikinn Gran Turismo 5, og er fyrsti bíllinn í fullri stærð sem framleiddur er eftir sýndarveruleikabifreið.

CT by Citroën verður á faraldsfæti í sumar og kemur fram á ýmsum stöðum ásamt öðrum glæsibifreiðum.


• Þann 23. maí hefur GT by Citroën Nürburgring kappaksturinn með heiðurshring á hinni nafntoguðu braut. Bíllinn verður svo til sýnis fyrir gesti og gangandi.
• Þann 12. júní slæst GT by Citroën í hóp ofurbíla frá öllum heimshornum í „La Grande Parade des Pilotes“ á Les Mans brautinni í samnefndri borg í Frakklandi. Bíllinn tekur þátt í kynningu á þeim 150 ökumönnum sem mynda liðin 50 sem keppa í 24 stunda kappakstrinum á Le Mans 13.-14. júní.
• Fyrstu helgina í júlí tekur GT by Citroën þátt í Goodwood Festival of Speed í Bretlandi. Þar mun bíllinn slást í hóp þeirra allra glæsilegustu hvað hönnun og aksturseiginleika varðar.

Nánari upplýsingar:

Umfjöllun um GT by Citroën á vef Wikipedia

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli