Smelltu á flokk

Citroën frétt 

08. september 2010
Citroën | fös. 12. jún. 2009

Citroën C4 Picasso er vistvænasti fjölnotabíllinn

Citroën C4 Grand Picasso er vistvænasti fjölnotabíllinn að mati What Car?
Citroën C4 Picasso hlaut titilinn vistvænasti fjölnotabíllinn á verðlaunahátíð What Car? tímaritsins þar sem vistvænir bílar í öllum flokkum voru heiðraðir.
Eins og segir á vef What Car?, spá um 70% bílakaupenda meira í að bjarga buddunni en jörðinni þegar þeir velja nýjan bíl. Það frábæra við Citroën C4 Grand Picasso sé, að með honum sé hægt að gera bæði án þess að slaka á kröfum um gæði.

Risarými

„C4 Grand Picasso er fjölnotabíll ársins hjá okkur og það þýðir að hann hefur þurft að berja af sér virkilega sterka samkeppni. Þar að auki hefur hann haldið titlinum í þrjú ár í röð, sem er afrek út af fyrir sig.“ Þetta eru upphafsorð umfjöllunar um vistvænasta fjölnotabílinn á vef What Car? Rýmið sé eitt það sem bíllinn hafi framyfir aðra svipaða bíla. Sjö manns komast fyrir með góðu móti af því að sætin eru sérstaklega þægileg og fóta- og höfuðrými er mikið. Stórar dyr gera það mjög þægilegt að koma börnum og barnastólum inn og út, og aðgengi að öftustu sætaröðinni er mjög gott þar sem miðjuröðin er á sleðum og hægt er að renna henni fram og upp. Það er líka auðvelt að brjóta aftursætin saman fljótt og örugglega og stækka þannig farangursrýmið verulega.


Þá er komið að ljúfum akstureiginleikum Picasso bílsins. Það séu að vísu snarpari fjölnotabílar á markaði, en ef litið sé til þæginda á langferðum og lipurleika í borgarakstri, se ekkert sem slái Citroën C4 Picasso út, segir í umsögn What Car? Hann sé rennilegur, fágaður og léttur í stýri, sem geri hann þægilegan fyrir alla í fjölskyldunni, alltaf.

Meira afl, minni mengun

C4 Grand Picasso hefur ýmislegt fleira til brunns að bera, ekki síst 108 hestafla 1.6 lítra dísilvélina. Reyndar er það sérstaklega sveigjanleg túrbódísilvél sem gefur bílnum þrjá hornsteina velgengni hans – sparneytni, styrk og lítinn útblástur.
Bíllinn veldur því vel að flytja sjö manns ásamt farangri, sparneytnin helst stöðug og er eyðslan um 5,3 lítrar á hundraði í blönduðum akstri, og útblástur koldíoxíðs er 140 g/km. Miðað við stærð bílsins, eru þessar tölur afar lágar.

Þegar allt kemur til alls, er magn útblásturs koldíoxíðs helsti mælikvarðinn á hve vistvænn bíll getur talist. Að þessu leyti stakk Citroën C4 Grand Picasso alla fjölnotabíla af. Þessi staðreynd, að því viðbættu hve bíllinn er praktískur, þægilegur og ódýr í rekstri, gerði hann að vistvænasta fjölnotabíl ársins 2009.

Nánari upplýsingar:

Umfjöllun á vef What Car?
Frétt á vef Citroën

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli