Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | þri. 23. jún. 2009

Citroën Berlingo sigursæll á Fleet Awards verðlaunahátíðinni

Besti nýi sendibíllinn - Citroën Berlingo 2009
Citroën Berlingo hlaut tvenn verðlaun á Fleet Awards verðlaunahátíðinni. Hún er haldin árlega og þar hljóta þeir bílar og bílaframleiðendur viðurkenningu sem þykja skara fram úr á vettvangi atvinnubifreiða, hvort sem um er að ræða bíla í borgarsnatt eða lengri sendiferðir.
Nýi Citroën Berlingo vann sér inn tvo titla á verðlaunahátíðinni í ár, Besti nýi sendibíllinn og Besti létti sendibíllinn. Dómnefnd sannfærðist um yfirburði Berlingo vegna einstakra kosta á öllum sviðum sem fleyttu bílnum fram fyrir mjög sterka samkeppni.

Einstakir eiginleikar Berlingo

Robert Handyside, framkvæmdastjóri atvinnubifreiða hjá Citroën, sagði verðlaunin afar ánægjuleg. „Citroën er himinlifandi yfir því að Berlingo Van skuli vinna bæði titilinn Besti sendibíllinn og Besti létti sendibíllinn á Fleet World verðlaunahátíðinni árið 2009. Verðlaunin eru viðurkenning á einstökum eiginleikum Berlingo. Enginn annar smærri sendibíll sem er í boði í Bretlandi nær eins mikilli breidd og Berlingo, og það kemur fram í sölutölunum.“
Nýi Berlingo býður upp á sveigjanleika og fjölbreytni. Hann er fáanlegur í tveimur útfærslum, með þremur vélum og í tveimur lengdum, en útgáfurnar eru alls ellefu. Hámarksþyngd farms er allt að 850 kg og hleðslurýmið er allt að 3,7 rúmmetrar, eða 4,1 rúmmetri með Extenso® aukabúnaði.

Extenso búnaðurinn fullnýtir rýmið

Hinn frumlegi Extenso aukabúnaður er staðalbúnaður í Berlingo LX sendibílum og gerir mögulegt að fella ytra farþegasætið saman til að koma megi fyrir allt að 3,25 metra löngum farmi. Extenso sætið rúmar annars ökumann og tvo farþega. Ytra farþegasætið er líka hægt að stilla þannig að neðri hlutinn smelli upp í lóðrétta stöðu upp við sætisbakið, til að hægt sé að flytja hærri hluti til hliðar við ökumann. Með Extenso ökumannsklefanum, eykst hleðslurýmið um 0,4 rúmmetra.

Nánari upplýsingar:

Umfjöllun á vef The Auto Channel

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli