Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fös. 26. jún. 2009

Meira afl, minni eyðsla

Ný vél Citröën er sú kraftmesta til þessa

Citroën hefur gefið út fyrstu fréttir af nýrri vél framleiðandans sem kemur fyrst í Citroën C5 og C6 síðar í sumar. Vélin er 3.0 lítra, 6 strokka, 240 hestafla dísilvél, og er sú kraftmesta í sögu Citroën. Vélin er þeim kostum gædd að vera öflugri og afkastameiri en forverar hennar, á sama tíma og hún er sparneytnari og gefur frá sér minna af koldíoxíði. Nýja vélin eyðir 13-17% minna af eldsneyti samkvæmt frétt frá Citroën, og gefur frá sér 12-15% minna af koldíoxíði, miðað við núverandi 2.7 lítra, 6 strokka, 208 hestafla vélina.

Hljóðlát og afkastamikil

Með nýrri tækni, innleiðir nýja V6 dísilvélin þriðju kynslóð common-rail innspýtingarkerfis Citroën og býður ökumönnum upp á fágaða akstursupplifun með hljóðlátri virkni og góðum afköstum. Snúningsátak vélarinnar er ríkulegt og veitir einstaka akstursánægju í hversdagsakstri.

Eldsneytissparnaður vélarinnar felst meðal annars í stýrðum rafali, sem safnar orku þegar slegið er af og hemlað. Vélin stenst einnig að fullu kröfur væntanlegs Evrópustaðals V, sem allar nýjar bifreiðar þurfa að standast frá janúar 2011.

Vélin er með sex gíra sjálfskiptingu, og er eyðslan um 7,4 lítrar á hundraði í blönduðum akstri. Í samræmi við umhverfisstefnu Citroën, er vélin ekki aðeins með dísilagnasíu(DPFS) sem hreinsar útblásturinn verulega, heldur er útblástur koldíoxíðs aðeins 195 g/km.

Nánari upplýsingar:

Frétt á vef Citroën

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli