Fyrstu myndirnar af nýja Citroën C3 eru komnar og lofa góðu! Á vef Auto Express segir að nýi keppandi Citroën um athyglina í flokki kraftmikilla smábíla beri með sér að glæsileg hönnun sé ofarlega á forgangslista Citroën um þessar mundir. Áberandi í útliti bílsins að utan er svokölluð Zenith framrúða, sem er aukabúnaður, en hún teygir sig yfir ökumanninn og veitir stóraukið útsýni til allra átta, svo ekki sé minnst á birtu innandyra. Þá er hún lituð með UV síum svo farþegar verði ekki fyrir skaðlegum sólargeislum inni í bílnum.
Gæðaefni og mælaborð úr hugmyndabílnum DS3 taka nýja C3 stiginu ofar hvað gæði varðar. Bætt hljóðeinangrun og innbyggður ilmur til að fríska upp á loftið innandyra gerir bílinn jafn hentugan til lengri ferða og hann er í borgarsnattið.
Fyrsta útgáfa verður með HDi 90 vél sem gefur aðeins frá sér 99 g/km af koldíoxíði, sem þýðir að þetta er fyrsti Citroën sem fer undir 100 markið. Frá 2011 gengur Citroën enn lengra. Stop & Start tæknin verður í boði í dísilútgáfu C3 og kemur hún til með að gefa frá sér aðeins 90 g/km. Næsta kynslóð af þriggja strokka bensínvélinni verður einnig undir 100 markinu þegar kemur að útblæstri koldíoxíðs.
Í tilkynningu frá Citroën vegna fyrstu kynningarmyndanna af nýja C3, segir að fyrstu bílarnir séu væntanlegur á markað í nóvember 2009. Markið sé sett hátt með nýja C3: að slá út forverann, sem hefur sett sölumet og selst í meira en 2 milljónum eintaka.
„Þetta er meiriháttar endurnýjun fyrir Citroën og gefur okkur tilefni til að ná því takmarki okkar að auka markaðshlutdeildina enn frekar, bæði á meðal einkaaðila og fyrirtækja,“ segir Frédéric Banzet, framkvæmdastjóri Citroën.
Vinningsformúla Citroën: Að taka það besta frá C3 og gera það enn betra. Nýi C3 er stútfullur af heillandi búnaði. Með einum fullkomnasta pakka búnaðar sem fáanlegur er í flokki smábíla, verður nýi Citroën C3 hinn fullkomni fjölskyldubíll eða flotafarartæki.
Í frétt Citroën segir að Zenith framrúðan geri C3 einstakan. Fyrir utan að auka útsýnið heilmikið og birtuna í farþegarýminu, verður akstursupplifunin önnur og betri. „Með nýja C3 opnar Citroën fyrir nýjan heim innan bílageirans með nýrri akstursánægju og nýjum skynjunum,“ segir Vincent Besson, á markaðssviði Citroën.
• Umfjöllun á vef Autoexpress og myndir
• Ítarlegri frétt á vef Citroën
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.