Þessi rennilegi Citroën DS5 með tvíorkuvél kemur á markað árið 2011
Sjáið rafdraum Citroën! Auto Express segist hafa heimildir fyrir því að dísiltvíorkubíll sé væntanlegur í sýningarsali Citroën árið 2011 – og að það verði þessi fjórhjóladrifni DS5.
Hann verður stærsta módelið í DS línunni sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu. DS línan var fyrst kynnt fyrir almenningi á bílasýningunni í Genf þegar DS3 bíllinn kom fyrst fyrir augu almennings. DS5 bíllinn verður eftirtektarverður, og fær útlit sitt að mestu leyti frá C-Sportlounge bílnum sem kynntur var árið 2005 á bílasýningunni í Frankfurt.
Til viðbótar við glæsilegt útlit, mun bíllinn verða knúinn vistvænni dísiltvíorkuvél, sem er sett saman úr HDI dísilvél og rafmótor sem knýr afturhjólin áfram. Vélin verður líka notuð í bíl systurfélagsins Peugot sem kemur út snemma árs 2011. Í yfirlýsingu frá höfuðstöðvum móðurfélagsins PSA segir: „Þessi tækninýjung hefur ýmsa góða kosti. Verulegan eldsneytissparnað og um 35% samdrátt í útblæstri koldíoxíðs.“
Unnið að framtíðinni
Skiptingin, sem er opinberlega nefnd PSA Hybrid diesel-electric technology, er í þróun í tveimur verksmiðjum í Frakklandi. Teymi á báðum stöðum vinna nú að því hvernig best sé að setja upp framleiðslufæriböndin til að framleiða bílana, og önnur módel framtíðarinnar, sem verða búin tvíorkutækninni.