Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mið. 29. júl. 2009

Citroën C3 Picasso fær frábæra dóma

Svalt útlit og fáguð tæknihönnun er meðal þess sem talið er nýju kynslóðinni af Citroën C3 Picasso til tekna.
Nýr og gjörbreyttur Citroen C3 Picasso fær fullt hús stiga eða fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá AutoExpress bílavefnum.

Slíkar toppeinkunnir vekja jafnan athygli, enda eru hinir kröfuhörðu ökuþórar vefsins þekktir af öðru en örlæti í stjörnugjöfum. Svalt útlit, sniðugar rýmislausnir og fáguð tæknihönnun er á meðal þess sem þeir telja nýju kynslóðinni til tekna.

Uppáhaldsbíll AutoExpress í þessum flokki

Óhætt er að segja að nýliðinn hjá Citroën fái fljúgandi start hjá AutoExpress. “Uppáhaldsbíllinn okkar í flokki smærri fjölnotabíla,” segir í fyrirsögn og í upphafi umfjöllunarinnar er mælt sérstaklega með bílnum við þá sem vilja framúrskarandi farkost.

Um innri hönnun bílsins segir að hann eigi sér fáa líka í sínum stærðarflokki hvað rými og rýmisnýtingu snertir. Þrátt fyrir smæð státi hann af miklu plássi fyrir jafnt börn sem fullorðna og farangursrými sem lumi á heilum 500 lítrum. Það megi síðan auðveldlega stækka, auk þess sem hvers konar vasar og handhæg geymsluhólf leynist víða um bílinn.

Þá taki mælaborðið sig vel út með stílhreinum álrömmum og flottum útfærslum á mælum og stjórnbúnaði.

Tæknihönnunin stelur senunni

Notagildi nýs Citroën C3 Picasso er því að mati AutoExpress hafið yfir allan vafa. Sömu sögu er að segja um hönnun bílsins og þykir aðdáunarvert hversu vel tekist hefur að tvinna saman svo praktískar áherslur við þægindi og aðlaðandi útlitshönnun að utan jafnt sem innan.

Að mati AutoExpress er það þó tæknihönnunin sem er senuþjófur nýju kynslóðarinnar, þar sem aksturseiginleikar bílsins sverji sig í ætt við mun stærri bíla en hér sé á ferð. Bíllinn sé afar stöðugur og þýður í akstri og leiði nánast engin vind-, vega- eða vélarhljóð þó að ekið sé á fullri ferð. Geri aðrir betur í þessum stærðarflokki bíla.

Hvað vélarkostinn snertir þá eru álitsgjafar AutoExpress sýnu hrifnastir af dísilvélum nýju kynslóðarinnar og þá sérstaklega 1,6 HDi vélinni, fyrir frábært tog og þýðan gang. Dísielvélarnar séu að auki bæði hagkvæmari og visthæfari kostur í rekstri.


Smelltu hér og lestu dóminn í heild sinni.



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli