06. febrúar 2012
Citroën
|
fös. 31. júl. 2009
Heimsmeistaralið Citroën í Rallí: Loeb aðeins stigi á eftir Hirvonen
Loeb sigraði Finnlandslegg keppninnar í fyrra og stefnir að sjálfsögðu á, að endurtaka leikinn í ár.
Sébastien Loeb hóf níundu umferð heimsmeistarkeppninnar í rallakstri, aðeins einu stigi á eftir Mikko Hirvonen. Umferðin fer fram í Finnlandi dagana 30. júlí til 2. ágúst og mætti Loeb vígreifur til leiks, en hann sigraði óvænt í fyrra á þessum legg keppninnar eftir eitilharða keppni við Hirvonen.
Citroën leiðir enn í keppni bílasmiða með 106 stig og er því með þægilega forystu á Ford liðin tvö sem verma 2. og 3. sætið með annars vegar 89 stig og hins vegar 58 stig.
Finnski leggurinn er jafnan kenndur við 1000 vatna rallið. Hann þykir óvenju erfiður yfirferðar vegna sibreytilegra skilyrða og eru keppnisbílar ýmist á hraðaflugi eða á hliðinni í kröppum beygjum.
Afrek að sigra fyrir aðra en Finna
Finnskir ökuþórar hafa ásamt öðrum norrænum keppendum átt þennan legg í gegnum tíðina og hefur aðeins þremur, sem ekki eru ættaðir frá Finnlandi eða einhverju hinna Norðurlandanna, tekist að sigra á 1000 vatna leiðinni eða Carlos Sainz, Didier Auriol og Sébastien nokkrum Loeb.
Hann freistar þess nú ásamt Daniel Elna, aðstoðarmanni sínum, að endurtaka leikinn frá í fyrra. Þá höfðu þeir nauman sigur á Hirvonen og munaði innan við 10 sekúndur á þeim félögum.
Loeb viðurkennir að finni fyrir vaxandi álagi. “Það hefði verið þægilegri staða að vera einhverjum stigum á undan Hirvonen,” var haft eftir honum á blaðamannafundi fyrir keppnina. “Á móti kemur að við höfum verið að fínpússa C4 WRC’inn tæknilega og erum við að mæta firnasterkir til leiks. Í fyrra skipti sköpum að ég treysti bílnum fullkomlega og gat beitt honum til hins ýtrasta allt frá byrjun til enda leggsins. Keppnin er því fyrst núna að hefjast af alvöru.”
Nánari upplýsingar um heimsmeistarkeppnina í rallakstri færðu hér: