Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mán. 10. ágú. 2009

Citroën DS4 á að umturna fjölnotabílamarkaðnum

Hér gefur að líta fyrstu vísbendingu um útlit Citroën DS4, en bíða verður fram á næsta ár eftir smátriðum
Fjölskyldubílnum Citroën DS4 er ætlað að veita bílum eins og Ford C-MAX samkeppni í flokki fjölnotabíla, með lúxusfarþegarými og glæsilegu útliti.

Tímaritið Auto Express býður lesendum sínum upp á að líta sem snöggvast á Citroën bílinn sem muni setja bílaiðnaðinn á annan endann, hvorki meira né minna! Það er nýi DS4 sem er slíkrar kynningar aðnjótandi – fyrsta flokks fjölskyldubíll sem slæst í för með DS3 bílnum í nýju lúxuslínu Citroën.

Bílnum er ætlað að höfða til sama hóps og væntanlegur Ford C-MAX, sem er byggður á Iosis MAX hugmyndabílnum. DS4 verður með risastór framljós, breitt loftinntak og sportlegan prófíl. Innandyra verður lúxusfarþegarými með afturbekk á sleðum, en mögulegt verður að skipta sætunum út, hverju fyrir sig.

Hagkvæmni og kraftur sameinast í Citroën DS4

Vélarnar sem boðið verður upp á í fyrstu útgáfu Citroën DS4 verða annars vegar 1.6 lítra túrbó bensínvél og hins vegar 2.0 lítra HDi dísilvél. Citroën hyggst einnig nota DS4 bílinn til að sýna tvíorkutæknina sem þróuð hefur verið hjá framleiðandanum í samstarfi við Peugeot. Með stop-start tækni og kröftugu snúningsátaki, kemur DS4 til með að bjóða upp á bæði hagkvæmni og afl.

Söluútgáfa Citroën DS3 verður frumsýnd á bílasýningunni í Frankfurt í september og hugmyndabíll sem gefa mun frekari vísbendingar um útlit og innviði DS4 bílsins verður frumsýndur snemma á næsta ári.

Nánari upplýsingar:

Frétt á vef Auto Express

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli