Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mán. 24. ágú. 2009

Hulunni svipt af Citroën DS3

Citroën DS3 er fyrsti bíllinn í nýju DS línunni og kemur á markað að nokkrum mánuðum liðnum
Enn eru nokkrir mánuðir í að Citroën DS3 verði kominn í sýningarsali en hann verður byggður á hugmyndabílnum DS Inside. DS línan er skipuð bílum sem státa af framúrskarandi hönnun, þar sem það besta á sviði tækni og sköpunar fær að njóta sín. Citroën hefur nú gefið út nánari upplýsingar um útlit bílsins, að innan sem utan, og gefur sú lýsing fulla ástæðu til eftirvæntingar. DS3 er bíll með sterkan persónuleika og glæsilegt útlit, sem kaupendur geta sniðið að mörgu leyti eftir eigin óskum vegna breiðs úrvals aukahluta.

DS3 fer ótroðnar slóðir


Með mótuðum stíl og eftirtektarverðum línum, fær DS3 höfuð til að snúast hvar sem til hans mun sjást. Þetta er sannarlega sérstæður bíll með sterkan persónuleika, ekki síst vegna frumlegrar hönnunar, eins og „fljótandi“ þakinu, „hákarlaugganum“, og díóðuljósunum að framan.

Lifandi og einstök hönnun

Þótt hann sé hlaðinn orku, er ánægjan af því að eiga DS3 ekki síður að þakka einstöku andrúmslofti innandyra þar sem fágun og tækni mætast og afraksturinn er gæði hvert sem litið er. DS3 er í raun ekki einn bíll, heldur margir, sem hver og einn getur skapað eftir eigin persónuleika. Meðal þess sem hægt er að laga að eigin óskum er þakið, yfirbyggingin, baksýnisspegill og felgur. Innandyra geta kaupendur valið á milli mismunandi mælaborða, hnúða á gírstöng og fjölda annarra atriða í farþegarými þar sem litagleði og breitt úrval efna ræður ríkjum. Til að leggja lokahönd á sérútgáfuna sína, geta kaupendur valið á milli sjö mismunandi þema sem hvert um sig er tengt ákveðinni stefnu eða lífstíl. DS3 er sannarlega persónulegt og einstakt farartæki.

Nútímanálgun á akstursánægju

DS3 er líka skrefinu framar á götum úti, þar sem hann sameinar akstursánægju og þægindi við hversdagsnotkun. Lipur og orkumikill færir DS3 ökumanninn „nær“ veginum og lætur þannig fullkomlega að stjórn. Samkvæmt Vincent Besson, framkvæmdastjóra stefnumörkunar í vöru- og markaðsmálum hjá PSA er það „eins og að hafa hjólin við fingurgómana,“ að aka bílnum. Sjálfstraust DS3 á veginum veitir frábært viðbragð og fyrsta flokks stjórn og öryggi. Þá setja þægindin ný viðmið í flokki svipaðra bíla.

Útblástur nýliðans er ekkert til að skammast sín fyrir, enda í fullu samræmi við umhverfisstefnu Citroën. Hægt verður að velja á milli 5 mismunandi véla í Citroën DS3. Tveggja mismunandi HDi dísilvéla og þriggja mismunandi bensínvéla; THP 150, VTi 120 og VTi 95. Citroën reyndi einnig eftir fremsta megni að halda þyngd bílsins í lágmarki, á sama tíma og notuð var ný tækni til að tryggja að bíllinn yrði sterkbyggður.

Lítill risi

Annað dæmi um nýsköpun af hálfu Citroën með nýja DS3, er að rennileg yfirbyggingin er dulbúinn fjölhæfur hlaðbakur. Stærðin er nýtt til fulls (3.95 m á lengd, 1.71 m á breidd og 1.46 m á hæð) með sérstaklega snjöllum arkitektúr. Til dæmis situr mælaborðið hátt til að gefa fótum sem mest rými, og nett aftursætin veita betra rými í farþegarýminu. Niðurstaðan er fimm sæti, mikið geymslurými, þar með talið 13 lítra hanskahólf, auk 285 lítra farangursrýmis. Þá höfðar DS3 til skynfæranna með HiFi hljóðkerfi, sem jafnast fyllilega á við nýjustu kynslóð hljómtækja til heimilisnota.

Hönnunarteymi Citroën DS3 hafði þrjú lykilorð í huga við hönnunina: Óvænt, aðdráttarafl og fjör. Niðurstaðan er kröftugur, en aðlaðandi bíll sem vekur upp þrána eftir ferðalögum.




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli