Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mán. 07. sep. 2009

Sviptingar í WRC mótaröðinni í rallakstri

Ford ökumanninum Hirvonen var dæmdur sigurinn vegna tímarefsingar Citroën
Eftir að Citroën liðið fagnaði sigri í WRC mótaröðinni í rallakstri í Ástralíu í gær, var sigurinn dæmdur Ford liðinu vegna tæknilegs brots Citroën. Lokaniðurstaðan er því sú að Mikko Hirvonen, sem ekur fyrir Ford liðið, hafnaði í fyrsta sæti, Sébastien Loeb fyrir Citroën hlaut annað sætið og liðsmaður hans, Dani Sordo, varð í því þriðja. Sigurinn var afar mikilvægur báðum liðum þar sem þau keppa nú um titilinn þegar aðeins tvær keppnir eru eftir á tímabilinu. Loeb hafði ekki sigrað síðan í Argentínu í apríl, og þurfti á sigrinum að halda til að halda forystu. Niðurstaðan varð hins vegar sú að Hirvonen var dæmdur sigurinn og er hann nú með fimm stiga forskot á Loeb í keppni ökuþóra en Citroën hefur enn þrettán stiga forskot á Ford liðið í keppni framleiðenda.

Refsing Citroën færði Ford sigurinn

Sunnudagurinn reyndist dramatískur í World Rally Championship mótaröðinni í rallakstri. Keppt var í Ástralíu að þessu sinni og var Sebastien Loeb fyrir Citroën fyrstur í mark eftir spennandi keppnishelgi. Eftir að sigrinum var fagnað barst þó tilkynning þess efnis að Citroën yrði refsað vegna ólöglegrar stærðar á ballansstöng á bílum liðsins og var Loeb, Sordo og Ogier, ökumönnum Citroën, öllum dæmd ein mínúta í refsitíma. Það þýddi breytingu á röð efstu manna og breyttri stigagjöf. Citroën hyggst ekki áfrýja ákvörðuninni.

Hirvonen hefur samúð með Loeb

Hirvonen sagði eftir að ákvörðunin var tilkynnt að honum þætti það leitt að spennandi keppni hefði á endanum verið útkljáð á þennan hátt.
„Mér voru dæmd refsistig í Portúgal fyrir 2 árum þannig að ég veit hvernig Sebastien hlýtur að líða núna. Ákvörðunin hefur gríðarleg áhrif á stöðuna og við förum nú til Spánar með fimm stiga forskot.“

Næsta keppni mótaraðarinnar fer fram á Spáni 2.-4. október.

Nánari upplýsingar:

Vefur WRC þar sem finna má allar nýjustu fréttir og upplýsingar um mótaröðina

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli