Nýr Citroën 2CV braggi hefur verið frumsýndur sem hugmyndabíll.
Mörgum fannst sjónarsviptir af gamla Citroën bragganum, þegar framleiðslu á honum var hætt fyrir tæpum 20 árum. Citroën kynnti nýlega hugmyndabíl sem byggir á arfleifð þessa þekktasta og vinsælasta Citroën allra tíma.
Gamli Citroën bragginn kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1948 og á þeim 42 árum sem hann var við lýði var hann eitt þekktasta tákn franska bílaiðnaðarins. Árið 1990 var hann tekinn úr framleiðslu, en er nú snúinn aftur í öllu nútímalegri mynd.
Grænn og með frábæra “samskiptahæfni”
Námkvæmari upplýsingar um arftaka gamla braggans liggja enn ekki fyrir, að því undanskildu að nýi bragginn verður mun betur úr garði gerður en forverinn í tæknilegu tilliti, sér í lagi hvað umhverfisvæna bílahönnun snertir. Þá verður “samskiptahæfni” bílsins með besta móti í þeim skilningi að hann getur tengst hvers kyns afþreyingar- og fjarskiptatækjum.
Það á síðan eftir að koma í ljós, hvort sérviskuleg hönnun gamla braggans fær að halda sér, eins og gírstöngin sem var ekki á milli framsætanna, heldur hægra megin við stýrið á framanverðu mælaborðinu.