08. september 2010
Citroën
|
þri. 29. sep. 2009
Lifandi sköpunargáfa í 90 ár
Hönnun GTbyCitroën er í anda sígildra hasarmynda og tölvuleikja.
Allt frá árinu 1934, þegar
Citroën Traction hreif bílaunnendur hvarvetna með sér, hefur skapandi tækniþróun, “Créative Technologie”, verið inntak Citroën.
Næstur í röðinni var 2CV bragginn, sem á árinu 1948 færði fólksbílinn í almenningseign víða um Evrópu. Síðan kom
Citroën DS, tækniundur ársins 1955 og svo mætti lengi telja.
Skapandi hönnun í 90 ár
Nú 90 árum frá stofnun, sýnir Citroën svo um munar að lifandi sköpunargáfa hefur ekkert með aldur að gera. Citroën heimsfrumsýndi á alþjóðlegu Frankfurt bílasýningunni tvo nýja Citroën eða nýja kynslóð af C3 ásamt DS3, fyrsta bílinn í nýrri Citroën DS línunni. Enn fremur styttist í uppfærðan C.Cross SUV sportjeppa sem skartar m.a. nýrri sjálfskiptingu og nýrri hönnun að innanverðu.
Þar með er þó ekki nema hálf sagan sögð. Nýr hugmyndabíll, Revolte, vakti óskipta athygli í Frankfurt, auk þess sem Citroën Berlingo sendibíllinn er væntanlegur á næsta ári í rafbílaútgáfu og hefur franska póstþjónustan La Poste þegar lagt inn pöntun fyrir 500 bílum.
Fleiri nýjunga að vænta á næstunni
Í rennunni bíða síðan tveir hugmyndabílar til viðbótar frumsýningar. Þar er á ferðinni afar visthæfur keppnisbíll, C4 WRC Hybrid4, frá Citroën Racing annars vegar og hinn eftirtektarverði GTbyCitroën hins vegar, sem fer mjög líklega í framleiðslu í takmörkuðu magni.
Þá er nýr Citroën dísiltvinnbíll væntanlegur á árinu 2011, ásamt nýjum DS5 og nýrri kynslóð af stop-start-tækninni sem verður fáanleg í flestum gerðum af Citroën dísil- eða bensínbílum.
Stiklað á stóru í 90 ára sögu Citroën. Myndir og nánari umfjöllun um nýjan Citroën C3. Myndir og nánari umfjöllun um DS nýju úrvalslínuna frá Citroën. Myndir og nánari umfjöllun um GTbyCitroën sem sækir fyrirmynd sína í grafíska tölvuleiki. Myndir og nánari umfjöllun um C4 WRC Hybrid4.