08. september 2010
Citroën
|
fim. 01. okt. 2009
Nýr og ofurflottur Citroën C3 Visiodrive brunar af stað
Nýja Citroën C3 kynslóðin er um margt einstök, bæði hvað hönnun og búnað snertir.
Citroën C3 er með mest seldu bílum í heimi í sínum flokki, en í sinni núverandi mynd hefur hann selst í meira en 2 milljónum eintaka. Ljóst var að Citroën beið allt annað en auðvelt verkefni með hönnun nýrrar kynslóðar.
Með tækni og búnað morgundagsins
Nokkur eftirvænting hefur því ríkt í kringum heimsfrumsýninguna, sem fram fór á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt og með hliðsjón af viðbrögðunum er óhætt að fullyrða að nýr Citroën C3 Visiodrive stendur undir væntingum.
Með nýju kynslóðinni þykir Citroën hafa tekist einstaklega vel upp við að sameina það besta úr núverandi kynslóð við væntingar morgundagsins í tækni og búnaði.
Niðurstaðan birtist í nýrri Visiodrive kynslóð af stóra smábílnum C3, sem lítur ekki aðeins vel út , heldur er hún bæði betur búinn, sparneytnari og visthæfari en forverinn.
Fágaður persónuleiki
Öll hönnun nýs Citroën C3 lýtur að gæðum í víðtækasta skilningi þess orðs og nær þessi kröfuharða nálgun bæði til útlits, notagildis og eiginleika bílsins. Visiodrive nafngiftin er sótt í nýja og framsækna hönnun sem gefur bílnum einstakt svipbragð. Þetta er þó ekki aðeins fyrir útlitið gert, þar sem stærð og lögun nýju Zenith framrúðunnar bætir birtuskilyrði inni í bílnum og eykur útsýni til allra átta.
Þá endurspeglar efnisval, áferð og frágangur bílsins á samstilltan hátt þessa stífu gæðanálgun. Það er því jafn auðvelt að "sjá" gæði bílsins í stílfærðri hönnun mælaborðsins og það er að "finna" þau við snertingu þess.
Ekkert smátt við C3
Aksturseiginleikar og öryggisbúnaður undirstrikar á sama hátt að hönnun bílsins er í eðli sínu "stór". Aksturseiginleikar nýja Citroën C3 hafa reyndar fengið sérlega góða dóma hjá bílagagnrýnendum, sem lýsa honum m.a. sem jafn stöðugum, liprum og skemmtilegum í akstri og um bíl í mun stærri flokki væri að ræða.
Síðast en ekki síst hefur hönnun Citroën C3 verið sögð "greind" hönnun í þeim skilningi að hönnuðir bílsins hafa ekki síður beitt hugviti sínu en smekkvísi. Um það vitna skemmtilega útfærðar lausnir sem miða að bættri rýmisnýtingu og leggja sitt af mörkum til þæginda bílsins.
Sem dæmi þá er hanskahólfið staðsett mun innar en áður. Við það nýtist áður vannýtt fótarými fyrir framsætið, auk þess sem framsætið færist mun nær mælaborðinu en áður. Mun rýmra er um farþegann í aftursætinu fyrir vikið. Einfalt og snjallt.
Það kemur því ekki á óvart að farangursrými Citroën C3 er það mesta sem þekkist í þessum stærðarflokki bíla eða allt að 300 ltr. Og þar sem gæðanálgun Citroën nær einnig til öryggisbúnaðarins þá eru ABS hemlar með EBD bremsujöfnun og EBA neyðarhemlun staðalbúnaður ásamt sex öryggispúðum.
Bæði vænn og grænn
Vélarkostur nýju C3 kynslóðarinnar spannar HDi dísilvél í þremur stærðarflokkum og 4Euro V bensínvél í tveimur stærðum. Dísilvélarnar eru að vanda sérlega visthæfar með CO2 útsleppi á bilinu 99-118 g/km. Allar vélargerðir eru á hinn bóginn sparneytnar og ná má eldsneytiseyðslunni enn frekar niður með aðstoð gírskiptivísis, sem gefur til kynna hvenær best sé að skipta um gír m.t.t. hámarks nýtingar eldsneytisins.
Það stuðlar síðan að enn betri eldsneytisnýtingu að nýja Citroën C3 kynslóðin er mun léttari í kílóum talið en forverinn og með enn minni vindmótstöðu, en forverinn. Hvað "þyngdartapið" varðar þá fínkembdu verkfræðingar Citroën alla möguleika í leit að lausnum og skilaði ný öxulhönnun t.a.m. 13 kg léttari öxli.
Á árinu 2011 verður vélakosti Citroën C3 skipt út fyrir nýjan sem samanstendur af tveimur dísilvélum og nýrri kynslóð af 3 strokka bensínvél. Allar eiga þær það sammerkt að CO2 útsleppið er í öllum tilvikum undir 100g/km.
Nýja kynslóðin af Citroën C3 er væntanleg á Evrópumarkað í nóvember nk.
Nánari umfjöllun um nýjan C3
Nánari umfjöllun um nýjan C3 og fleiri myndir
Myndir í nýjum Citroën C3 í góðri upplausn