Smelltu á flokk

Citroën frétt 

09. september 2010
Citroën | mán. 05. okt. 2009

Citroën hampar heimsmeistarabikar bílasmíða í rallakstri

Citroën Total World Rally liðið skoraði tvöfalt í Katalóníu um helgina.
Citroën Total World Rally Team fagnaði tvöföldum sigri í Katalóníu rallakstrinum í gær. Eftir keppni helgarinnar eru Loeb/Elna (Citroën C4) því aðeins stigi á eftir Hirvonen/Lehtinen (Ford Focus) í keppni ökuþóra. Hvort liðið hefur sigur að lokum, ræðst í 12. og síðustu keppni ársins, sem fram fer í Bretlandi 23. til 24. okt. n.k.

Þetta er sjötti sigur Sébastien Loeb og Daniel Elna tvíeykisins í ár og í þriðja sinn sem þeir vinna tvöfalt fyrir Citroën ásamt liðsfélögum sínum þeim Dani Sordo og Marc Marti.

Tvöfaldur sigur í höfn

Eftir æsispennandi keppni í Katalóníu um helgina, tókst Loeb og Elna að ljúka fyrstir allra við síðasta og jafnframt hinn vandekna 4,11 km La Serra d‘Almos legg keppninnar.

Nákvæmlega 12 sekúndum síðar renndu Sordo og Marti í mark og 54,1 sekúndu síðar þeir Hirvonen og Lehtinen.

Þessi frækilegi tvöfaldi sigur Citroën liðsins tryggði Citroën 5. sigurinn í heimsmeistarakeppni bílasmíða í rallakstri.* „Báðir bílar gengu óaðfinnanlega. Þá var sigurinn í dag ekki síður frammistöðu Danis að þakka, sem var óaðfinnanleg frá öllum hliðum séð,“ sagði Loeb þegar úrslitin lágu fyrir.


Frédéric Banzet, framkvæmdastjóri Citroën, var einn fjölmargra aðdáaenda Citroën rall-liðsins sem beið spenntur við marklínuna. Þegar ljóst var að frammistaða liðsins nægði Citroën til að hampa heimsmeistarabikarnum í fimmta sinn sagði Banzet það eina bestu viðurkenninguna sem hægt væri að hugsa sér á 90 ára afmælisári Citroën. „Þá heppnaðist keppnin í alla staði vel og óhætt að segja að hún hafi staðið fyrir spennandi skemmtun á heimsmælikvarða.“

*Óstaðfest úrslit keppninnar að hálfu FIA þegar þetta er ritað.


Nánari á heimasíðu Citroën rally liðsins.


Umfjöllun Autoweek.




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli